730. beiðni um áframhaldandi afnota af beitarlandi í landi Kollaleiru
Mál 2005174 Fyrst á dagskrá 2. júní 2020, síðast 8. júní 2020. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 261 liður 13
Lögð fram beiðni Einars Sverris Björnssonar um áframhaldandi afnota af landi til hrossabeitar, ofan við gömlu fjárhúsin á Kollaleiru á Reyðarfirði, dagsett 24. maí 2020. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs, dagsett 29. maí 2020, vegna beiðninnar. Fjarðabyggð hefur gert samning við Landgræðsluna um endurheimt votlendis á því landi sem óskað er eftir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að önnur not af landinu en endurheimt votlendis séu ekki fyrirhuguð að sinni.
-
Bæjarráð, fundur 666 liður 22.13
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 261“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.