Hafnarstjórn, fundur 244
2. júní 2020, kl. 15:00 til 16:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
- Björgvin V Guðmundsson, varamaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 666 liður 23
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 244, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2021
Mál 2005026 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn ræddi forsendur fjárhagsáætlunar 2021 og vísar henni til áframhaldandi vinnslu við fjárhagsáætlunargerð.
-
2. Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021
Mál 2004009 Allur ferill málsins
Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd drögum að ferðamálastefnu fyrir Fjarðabyggð ásamt minnisblaði. Hafnarstjórn ræddi drög að ferðamálastefnu og gerir ekki athugasemdir við hana fyrir sitt leyti.
-
3. Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2019
Mál 2005102 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög að ársreikningi Hafnasambands Íslands 2019
-
4. Umsókn um rannsóknarleyfi í Norðfjarðarflóa
Mál 2003074 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að rannsóknarleyfi frá Orkustofnun vegna tilraunaefnistöku úr Norðfjarðarflóa en málið hefur verið í vinnslu hjá stofnuninni síðan árið 2017. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að vinna málið áfram og gengið verði í rannsóknardælingar um leið og leyfið liggur fyrir.
-
5. Strandgata - Gamla bræðsla Mjóeyrarvík
Mál 2001014 Allur ferill málsins
Ósk frá Sævari Guðjónssyni um framlengingu á leigusamningi vegna Strandgötu 104, Eskifirði. Hafnarstjóri lagði fram drög að leigusamningi. Hafnarstjórn samþykkir drögin í samræmi við umræður á fundinum og felur hafnarstjóra frágang málsins.