Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 245

15. júní 2020, kl. 11:30 til 13:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 668 liður 10

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 245 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 294 liður 5

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Sigurður Ólafsson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 15. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Verkefni hafnarsjóðs

    Mál 1908100 Allur ferill málsins

    Hafnarverndarmál Mjóeyrarhafnar rædd. Minnisblað um vöktun svæðisins lagt fram. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju.

  2. 2. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020

    Mál 2001204 Allur ferill málsins

    Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020 lagðar fram til kynningar.

  3. 3. Ósk um leyfi til notkunar vita Fjarðabyggðar

    Mál 2006062 Allur ferill málsins

    Beiðni frá Menningarstofu Fjarðabyggðar um leyfi til notkunar á vitum Fjarðabyggðar til listsköpunar í tengslum við Skapandi sumarstörf. Hafnarstjórn samþykkir beiðnina fyrir sitt leyti með fyrirvara um formlega breytingu um eignarhald vitanna. Málinu vísað til bæjarráðs.

  4. 4. Beiðni um styrk vegna hátíðahalda á sjómannadaginn 2020

    Mál 2006009 Allur ferill málsins

    Beiðni frá Sjómannadagsráði Eskifjarðar um styrk til að standa straum af dagskrá Sjómannadagsins á Eskifirði 2020 og styrkja hátíð næsta árs enn frekar. Samkvæmt bókun bæjarráðs frá 25.5.2020 samþykkir bæjarráð að helmingur framlaga til hátíða sem ekki fara fram á árinu 2020 verði til viðbótar úthlutunar hátíðanna á árinu 2021 til þeirra sem þess óska. Hafnarstjórn hafnar beiðni um styrk en samþykkir að úthlutunin verði samkvæmt bókun bæjarráðs fyrir næsta ár.

  5. 5. Umsókn um styrk vegna Franskra daga 2020

    Mál 2002167 Allur ferill málsins

    Franskir dagar á Fáskrúðsfirði óska eftir styrk vegna hátíðarinnar. Samkvæmt bókun bæjarráðs frá 25.5.2020 samþykkir bæjarráð að helmingur framlaga til hátíða sem ekki fara fram á árinu 2020 verði til viðbótar úthlutunar hátíðanna á árinu 2021 til þeirra sem þess óska. Hafnarstjórn hafnar beiðni um styrk en samþykkir að úthlutunin verði samkvæmt bókun bæjarráðs fyrir næsta ár.

  6. 6. Sorphirða og endurvinnsla á höfnum

    Mál 1901126 Allur ferill málsins

    Framtíð sorpmála á Fjarðabyggðarhöfnunum rædd.

  7. 7. Umsókn um rannsóknarleyfi í Norðfjarðarflóa

    Mál 2003074 Allur ferill málsins

    Leyfi til leitar og rannsókna á lausum jarðefnum á hafsbotni utan netlaga í Norðfjarðarflóa hefur borist frá Orkustofnun. Leyfið lagt fram til kynningar.

  8. 8. Umsókn um leitarleyfi í Norðfjarðarflóa

    Mál 2006038 Allur ferill málsins

    Umsókn um leitarleyfi til rannsókna á seti á hafsbotni í Norðfjarðarflóa með setkjarnatöku hefur verið send inn til Orkustofnunar. Lagt fram til kynningar.

  9. 9. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar samantekt af hönnunarskýrslu Eflu fyrir stækkun Eskifjarðarhafnar með kostnaðaráætlun fyrir efniskaup og rekstur. Hafnarstjórn óskar eftir að Efla komi og kynni málið nánar á næsta fundi.