Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 260

18. maí 2020, kl. 16:00 til 18:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 665 liður 15

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 260 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 292 liður 5

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 18. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 776.mál til umsagnar frumvarp til laga um um breytingu á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, með síðari breytingum (átak í fráveitumálum),

    Mál 2005079 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dagsett 12. maí 2020, um umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, með síðari breytingum. Lögð fram umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarpið, dagsett 15. maí 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir umsögn Sambandsins.

  2. 2. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027

    Mál 1810136 Allur ferill málsins

    Kynnt staða endurskoðunar Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027.

  3. 3. Lýsing fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum til umsagnar

    Mál 2005063 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 8. maí 2020, þar sem fyrir hönd svæðisráðs er óskað eftir umsögn vegna lýsingar fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að vinna að umsögn í samráði við verkefnisstjóra hafna og hafnarstjóra.

  4. 4. 755 Heyklif, ferðaþjónusta - beiðni um umsögn vegna matsskyldu

    Mál 2005088 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar, dagsett 14. maí 2020, um umsögn vegna uppbyggingar ferðaþjónustu að Heyklifi skv. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Óskað er eftir umsögn á því hvort og á hvað forsendum fyrirhuguð framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að fyrirhuguð uppbygging ferðaþjónustu sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

  5. 5. 755 Heyklif - breyting á aðalskipulagi, ferðaþjónusta

    Mál 1909021 Allur ferill málsins

    Auglýsingartíma vegna breytingar á aðalskipulagi vegna uppbyggingar ferðaþjónustu við Heyklif er lokið. Ein athugasemd barst. Lögð fram umsögn sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna athugasemdar, dagsett 18. maí 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna uppbyggingar ferðaþjónustu að Heyklifi fyrir sitt leyti. Greinagerð og umhverfisskýrsla, dags. 10. mars 2020. Málsmeðferð verði í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

  6. 6. 755 Deiliskipulag Heyklif

    Mál 1904069 Allur ferill málsins

    Auglýsingartími vegna deiliskipulags Heyklif er liðinn. Eina athugasemd barst. Lögð fram umsögn sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna athugasemdar, dagsett 18. maí 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti deiliskipulag Heyklifs. Uppdráttur, greinagerð og umhverfisskýrsla, dags. 7. febrúar 2020. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

  7. 7. 750 Búðavegur 35 - Fyrirspurn um breytingu á skipulagi

    Mál 2004043 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Rafael ehf, dagsett 8. maí 2020, þar sem óskað er eftir að landnotkun aðalskipulags verði breytt þannig að hægt verði að gera ráð fyrir íbúðum í húsnæði félagsins að Búðavegi 35 á Fáskrúðsfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að við endurskoðun aðalskipulags verði landnotkun við Búðaveg 35 breytt þannig að gert verði ráð fyrir íbúðum á svæðinu.

  8. 8. 730 Óseyri 1 - byggingarleyfi, fjölgun fasteigna

    Mál 2005001 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Stefáns Sigurðssonar, dagsett 30. apríl 2020, þar sem sótt er um leyfi til að breyta eignarhluta hans að Óseyri 1 á Reyðarfirði úr einni fasteign í tvær.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  9. 9. 740 Hafnarbraut 15 - byggingarleyfi, viðbygging

    Mál 2004154 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Nestaks ehf, dagsett 29. apríl 2020, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 193,3 fm. og 608,9 rm. verslunarhús á lóð fyrirtækisins að Hafnarbraut 15, áður Hafnarbraut 17, á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  10. 10. 740 Egilsbraut 26 - Umsókn um stöðuleyfi, torgsöluhús við beituskúrinn

    Mál 2005077 Allur ferill málsins

    Lögð fram stöðuleyfisumsókn Hildibrand slf., dagsett 12. maí 2020, þar sem óskað er eftir stöðuleyfi fyrir torgsöluhús á lóð fyrirtækisins við Egilsbraut 26 á Norðfirði. Sótt er um leyfi til að láta torgsöluhúsið standa til 6. september 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir stöðuleyfið.

  11. 11. 735 Strandgata 9A - Umsókn um stækkun lóðar

    Mál 2005061 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Garðars Eðvalds Garðarssonar, dagsett 10. maí 2020, um stækkun á lóð hans við Strandgötu 9a á Eskifirði. Stækkun er fyrirhuguð til austurs, þar sem gert er ráð fyrir byggingu á um 28 fm. geymsluskúr.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindið og telur að hægt sé að stækka lóðina að lóð Strandgötu 11.

  12. 12. Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar

    Mál 1805134 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar uppfærð umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að leggja lokahönd á uppfærslu umferðarsamþykktar og leggja fyrir nefndina að nýju.

  13. 13. 715.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ymsum lögum er varðar eignarráð og nýtingu fasteigna

    Mál 2005027 Allur ferill málsins

    Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna (aðilar utan Evrópska efnahagssvæðisins, landeignaskrá, ráðstöfun landeigna, aukið gagnsæi o.fl.) mál 715. Umsögn þyrfti að berast eigi síðar en 21. maí nk. Vísað frá bæjarráði með beiðni um að veitt verði umsögn ef ástæða er til.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að yfirfara frumvarpið og leggja umsögn fyrir nefndina ef ástæða er til.

  14. 14. 750 Stekkholt Fáskrúðsfirði

    Mál 2005108 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá Gesti Valgeiri Gestssyni er varðar hæðarpunkta við götuna Stekkholt í Fáskrúðsfirði, vatnsrennsli frá fjalli ofan við Stekkholt og lagfæringar á göngubrú við enda götunnar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar erindinu til sviðsstjóra framkvæmdasviðs.