Bæjarráð, fundur 693
21. desember 2020, kl. 08:30 til 10:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 304 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 21. desember sl. utan liðar 1 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kauptilboð í fasteignir í Neskaupstað og á Eskifirði
Mál 2012011 Allur ferill málsins
Lagt fram nýtt kauptilboð í átta íbúðir í eigu Fjarðabyggðar eftir viðræður fjármálastjóra við tilboðsgjafa.
Bæjarráð samþykkir að taka kauptilboði og felur bæjarstjóra undirritun samninga og gagna vegna kaupanna.
-
2. Kauptilboð í Búðareyri 19 Reyðarfirði
Mál 2012126 Allur ferill málsins
Lagt fram kauptilboð í fasteignirnar Búðareyri 19 og 21.
Bæjarráð hafnar tilboði og felur fjármálastjóra að gera gagntilboð.
-
3. Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði
Mál 2004112 Allur ferill málsins
Fram lagðar niðurstöður í útboði á byggingu nýs íþróttahúss á Reyðarfirði. Tveir aðilar buðu í verkið og var Launafl hf. lægstbjóðandi í verkið.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings. Jafnframt vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
4. Snjómokstur í Fjarðabyggð
Mál 2006083 Allur ferill málsins
Lagt fram til upplýsinga innra vinnuskjal sviðsstjóra framkvæmdasviðs um fyrirkomulag snjómoksturs veturinn 2020 til 2021.
-
5. Sorpmál í Fjarðabyggð
Mál 1909099 Allur ferill málsins
Lögð fram gögn vegna útboðs úrgangsmála í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að verkið verði boðið út. Útboðsgögnum jafnframt vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
6. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
Mál 1904072 Allur ferill málsins
Lögð fram fyrstu drög að skýrslu verkfræðistofunnar EFLU um almenningssamgöngur í Fjarðabyggð, ásamt minnisblaði bæjarstjóra.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
-
7. Stytting vinnuvikunnar, betri vinnutími
Mál 2008127 Allur ferill málsins
Framlagðir samningar stofnana um styttingu vinnutíma starfsmanna í dagvinnu til staðfestingar. Jafnframt lagt fram minnisblað um áhrif og framkvæmd styttingar á starfsemi og kostnað sem af henni getur hlotist.
Bæjarráð staðfestir framlagða samninga um styttingu vinnuvikunnar.
-
8. Reglur um stuðningsþjónustu
Mál 2009002 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drög að uppfærðum reglum um stuðningsþjónustu ásamt minnisblaði.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
9. Reglur um akstursþjónustu við fatlað fólk
Mál 2012034 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að reglum um akstursþjónustu við fatlað fólk ásamt minnisblaði. Í fjárhagsáætlun 2021 er gert ráð fyrir kostnaði sem hlýst af þeirri þjónustuaukningu sem má búast við með setningu reglnanna.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
10. Reglur Fjarðabyggðar um þjónustu stuðningsfjölskyldna fyrir fötluð börn
Mál 2012072 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að reglum ásamt minnisblaði um þjónustu stuðningsfjölskyldna fyrir fötluð börn.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
11. Reglur um félagslegt leiguhúsnæði
Mál 2004147 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að uppfærðum reglum um félagslegt leiguhúsnæði ásamt minnisblaði.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
12. Styrkur til Krabbameinsfélags Austfjarða
Mál 2012121 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni Krabbameinsfélags Austfjarða um að gerður verði samningur við félagið um fast árlegt framlag.
Bæjarstjóra falið að ræða við félagið um starfsemi félagsins og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
13. Málefni hjúkrunarheimila, samningar við Sjúkratryggingar
Mál 2005127 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar erindi bæjarstjóra sveitarfélagsins Hornafjarðar til heilbrigðisráðherra vegna uppsagnar samninga sveitarfélaganna við Sjúkratryggingar Íslands.
-
14. 369.mál til umsagnar frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð
Mál 2012093 Allur ferill málsins
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð, 369. mál. Umsögn berist eigi síðar en 1. febrúar nk.
Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt bæjarritara að veita umsögn.
-
15. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020
Mál 2002033 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar sambandsins nr. 892 frá 11.desember, lögð fram til kynningar.
-
16. Aðalfundarboð Sjóminjasafns Austurlands 2020
Mál 2012127 Allur ferill málsins
Boðað er til aðalfundar Sjóminjasafns Austurlands 2020 miðvikudaginn 13. janúar 2021 í Tónlistarmiðstöð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð á aðalfundinn.
-
17. Félagsmálanefnd - 140
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 140 frá 15.desember, lögð fram til afgreiðslu.
- 17.1 Reglur um félagslegt leiguhúsnæði2004147
- 17.2 Reglur um akstursþjónustu við fatlað fólk2012034
- 17.3 Reglur um stuðningsþjónustu2009002
- 17.4 Reglur Fjarðabyggðar um þjónustu stuðningsfjölskyldna fyrir fötluð börn2012072
- 17.5 Beiðni um fjárframlag til Kvennaráðgjafarinnar 20212011206
- 17.6 Vinnustaðagreining Fjölskyldusviðs2012105
-
18. Hafnarstjórn - 254
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 254 frá 15.desember, lögð fram til afgreiðslu.
- 18.1 Ósk Cargow um landtengingu á Mjóeyrarhöfn2012071
- 18.2 Laxar Fiskeldi ehf ný hafnaraðstaða1910162
- 18.3 Umsögn vegna tillagna að eldissvæðum fiskeldis í Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði2007105
- 18.4 Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður2012075
- 18.5 730 Hraun 14 - Umsókn um lóð2011171
- 18.6 Sérstakt strandveiðigjald til hafna 20202011192
-
19. Barnaverndarfundargerðir 2020
Mál 2003129 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 125 frá 17. desember 2020, lögð fram til afgreiðslu.