Bæjarráð, fundur 694
4. janúar 2021, kl. 08:30 til 09:55, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 304 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 4. janúar sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kauptilboð í Búðareyri 19 og 21 á Reyðarfirði
Mál 2012126 Allur ferill málsins
Lagt fram til staðfestingar nýtt kauptilboð Krossavíkur í Búðareyri 19 og 21. Bæjarfulltrúar hafa þegar staðfest kauptilboðið símleiðis.
Bæjarráð samþykkir kauptilboðið og felur bæjarstjóra að undirrita kaupsamning og skjöl vegna sölunnar.
-
2. Grenndarkynning vegna lóðar við Lambeyrarbraut
Mál 2012170 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Björns Ásgeirssonar um grenndarkynningu vegna úthlutunar lóðar við Lambeyrarbraut á Eskifirði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða bréfritara til fundar með formanni eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs.
-
3. Einstefna við Melagötu 4-15 Neskaupstað
Mál 2012149 Allur ferill málsins
Framlagt bréf íbúa sem búa við Melagötu 4 til 15 í Neskaupstað, þar sem m.a. er mótmælt einstefnuakstri í hluta Melagötu.
Vísað til umfjöllunar í eigna- skipulags og umhverfisnefnd.
-
4. Lokaskýrsla um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning
Mál 2012132 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar lokaskýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning. Óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til hugmynda um eitt opinbert stuðningskerfi við leigjendur. Bæjarráð vísar skýrslunni til meðferðar á fjölskyldusviði með beiðni um umsögn sem lögð verði fyrir bæjarráð.
-
5. Innleiðing hringrásarhagkerfisins
Mál 2012172 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra um hringrásarhagkerfið - e. Dedifer project. Með tækniþróun og innleiðingu hringrásarhagkerfisins er horft til þess að úrgangur sem til fellur sé nýttur til sjálfbærni.
Vísað til sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs með beiðni um mat á vinnuframlagi og kostnaði vegna þátttöku. Tekið fyrir að nýju í bæjarráði að því loknu.
-
6. Endurskoðaður samningur um Skólaskrifstofu Austurlands bs
Mál 2012153 Allur ferill málsins
Lagðir fram til staðfestingar samningar um Skólaskrifstofu Austurlands og hlutverk hennar í þjónustu við fatlað fólk.
Bæjarráð vísar samningum til staðfestingar í bæjarstjórn. Jafnframt er bæjarstjóra falið að hefja viðræður við eignaraðila í skrifstofunni, í samráði við sviðsstjóra fjölskyldusviðs, um framtíð hennar og fyrirkomulag innan fjölskyldusviðs.
-
7. 339.mál til umsagnar frumvarp til laga um kosningalög,
Mál 2012140 Allur ferill málsins
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um kosningalög, 339. mál. Umsögn berist eigi síðar en 12. janúar.
Vísað til bæjarstjóra og bæjarritara en þeir meti hvort umsögn verði send inn.
-
8. Frumvarp um breytingar á ýmsum lögum vegna áhrifa Covid-19 á sveitarfélög.
Mál 2012160 Allur ferill málsins
Lögð hafa verið fram í samráðsgátt stjórnvalda, drög að frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum vegna áhrifa Covid-19 á sveitarfélögin í landinu.
-
9. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 278
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 278 frá 21.desember, lögð fram til afgreiðslu.
- 9.1 Svæðisskipulagsnefnd2012051
- 9.2 Deiliskipulag, Eskifjörður-Útkaupstaður2009211
- 9.3 735 Lambeyrarbraut - Umsókn um lóð2011049
- 9.4 740 Urðarteigur 9 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2012068
- 9.5 730 Búðareyri 19-21 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2012125
- 9.6 Stekkholt 9 - Umsókn um byggingarleyfi, íbúðarhús2012114
- 9.7 730 Austurvegur 59A - Umsókn byggingarleyfi, sólstofa2010026
- 9.8 740 Mýrargata 20 - Umsókn um byggingarleyfi, breyting inni og tengigangur2012096
- 9.9 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20202002144
- 9.10 Seley - nytjaréttur af æðarvarpi2004064
- 9.11 Beiðni um framlengingu á geymsluleyfi starfsmannabúða að Haga 2020-20212012066
- 9.12 730 Öldugata - Götuheiti á Reyðarfirði, Öldugata, Ósmelur2012052
- 9.13 Sorpmál í Fjarðabyggð1909099
- 9.14 Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði2004112