Fjárhagsáætlun 2020 - viðauki 5
Mál 2010202 Fyrst á dagskrá 2. nóvember 2020, síðast 5. nóvember 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Bæjarráð, fundur 686 liður 3
Framlagður viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 um breytingar vegna endurfjármögnunar.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 300 liður 16
Bæjarstjóri mælti fyrir tillögu um viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins.
Lesa alla bókunina (336 orð til viðbótar)
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2020. Viðaukinn felur í sér að rekstrarútgjöld í A hluta hækka um 29 m.kr., lántökur hækka um 405 m.kr. og afborganir langtímalána hækka um 376 m.kr. Í B hluta hækka rekstrarútgjöld um 21 m.kr., tekjur hækka um 410 m.kr., lántökur hækka 295 m.kr. og afborganir langtímalána um 274 m.kr. Eigið fé einstakra stofnana og samstæðunnar í heild breytist til samræmis. Samandregið var sjóðsstaða áætluð í lok árs 2020 um 556 milljón króna og helst óbreytt með þessu viðauka.
Lántökur ársins í Aðalsjóði hækki um 141 m.kr., 11 m.kr. færist sem fjármagnskostnaður, 130 m.kr. til greiðslu afborgana lána.
Lántökur ársins í Eignasjóði hækki um 264 m.kr., 18 m.kr. færist sem fjármagnskostnaður, 246 m.kr. til greiðslu afborgana lána.
Lántökur ársins í Hafnarsjóði hækki um 71 m.kr., 5 m.kr. færist sem fjármagnskostnaður, 66 m.kr. til afborgana lána.
Lántökur ársins í Hitaveitu hækki um 33 m.kr., 2 m.kr. færist sem fjármagnskostnaður, 31 m.kr. til afborgana lána.
Lántökur ársins í Fráveitu hækki um 25 m.kr., 2 m.kr. færist sem fjármagnskostnaður, 23 m.kr. til afborgana lána.
Lántökur ársins í Félagslegum íbúðum hækki um 23 m.kr., 2 m.kr. færist sem fjármagnskostnaður, 21 m.kr. til afborgana lána.
Lántökur ársins í Vatnsveitu hækki um 143 m.kr., 10 m.kr. færist sem fjármagnskostnaður, 133 m.kr. til afborgana lána.
Lántakan hefur áhrif á rekstur, efnahag, eigið fé og sjóðsstreymi, það er einstakra liða innan rekstrareininga en breytir ekki handbæru fé. Enn fremur er lagt til að rekstrarþáttur þessarar fjármögnunar fari í gegnum viðskiptareikning sjóða við Aðalsjóð.
Í viðauka 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 var samþykkt i kjölfar sölu á Rafveitu Reyðarfjarðar að hækka sjóðsstreymi um 410 m.kr. og viðskiptastaða Rafveitunnar lækkaði samsvarandi gagnvart Aðalsjóði og eigið fé tæki samsvarandi breytingum. Lögð er til breyting þannig að rekstrartekjur Rafveitu Reyðarfjarðar hækki um 410 m.kr. vegna sölunnar en sjóðsstreymis áhrifin og viðskiptastaða veitunnar við Aðalsjóð standi óbreytt frá fyrri viðauka.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2020.
-
Bæjarstjórn, fundur 300 liður 4.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 686“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.