Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

735 Leirukrókur 4 - Umsókn um lóð

Mál 2010123 Fyrst á dagskrá 9. nóvember 2020, síðast 19. nóvember 2020. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Lóðir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 275 liður 10

    Lögð fram lóðarumsókn Eskju hf., dagsett 19. október 2020, þar sem sótt er um lóðina við Leirukrók 4 á Eskifirði. Lóðinni hefur áður verið úthlutað til Fjarðabyggðar undir móttökustöð á sorpi.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að Fjarðabyggð skili inn lóðinni. Nefndin samþykkir jafnframt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni að nýju og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Jafnframt er sviðssjtóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að kanna möguleika á nýju iðnaðarsvæði á Eskifirði.

  2. Bæjarráð, fundur 688 liður 14

    Lögð fram lóðarumsókn Eskju hf., dagsett 19. október 2020, þar sem sótt er um lóðina við Leirukrók 4 á Eskifirði. Lóðinni hefur áður verið úthlutað til Fjarðabyggðar undir móttökustöð á sorpi.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að Fjarðabyggð skili inn lóðinni. Nefndin samþykkti jafnframt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni að nýju og vísaði umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Jafnframt var sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að kanna möguleika á nýju iðnaðarsvæði á Eskifirði. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóð.

  3. Bæjarráð, fundur 688 liður 18.10

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 275“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 301 liður 2.14

    Fundargerðin „Bæjarráð - 688“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  5. Bæjarstjórn, fundur 301 liður 4.10

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 275“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is