Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

Ungt fólk í Fjarðabyggð, samningur um rannsóknir á högun og líðan ungmenna 2021-2024

Mál 2011063 Fyrst á dagskrá 11. nóvember 2020, síðast 19. nóvember 2020. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Fræðslunefnd, fundur 92 liður 5

    Fyrir liggur drög að samningi Fjarðabyggðar við Rannsóknir og greiningu um úrvinnslu úr rannsóknum á högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð. Samningurinn er í stórum dráttum líkur þeim samningi sem gilt hefur undanfarin ár. Markmið úrvinnslunnar er að vinna hagnýtar upplýsingar í hendur forvarnarhópa og bæjaryfirvalda til stefnumótunar og áætlunargerðar í málefnum ungmenna í sveitarfélaginu, styrkja faglegan grundvöll stefnumótunar, auka virði samfélagsins gagnvart börnum og stuðla að virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Nánari tilhögun er sem hér segir: 1) Ítarlegar skýrslur um hagi og líðan ungmenna (félagslegu þættirnir og víma) í grunnskólum meðal nemenda í 8. - 10. bekk verða unnar árin 2022 og 2024. 2)Vímuefnaneysla í efstu bekkjum grunnskóla ( 8. - 10. bekk) árin 2021, 2022, 2023 og 2024. Rannsóknarniðurstöður vímuefnakannananna verða í sama formi og áður og taka á vímuefnaneyslu ungmenna, reykingum, munn- og neftóbaksneyslu, áfengisneyslu og fíkniefnaneyslu. 3)Ítarlegar rannsóknir á högum og líðan ungmenna í 5. - 7. bekk verða unnar árin 2021 og 2023 og skýrslur gefnar út til Fjarðabyggðar í framhaldi. Fræðslunefnd gerir ekki athugasemdir við drögin og fagnar því að áfram verði fylgst vel með högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð.

  2. Bæjarráð, fundur 688 liður 13

    Fyrir liggja drög að samningi Fjarðabyggðar við Rannsóknir og greiningu um úrvinnslu úr rannsóknum á högum og líðan ungmenna í Fjarðabyggð. Samningurinn er í stórum dráttum sambærilegur þeim samningi sem gilt hefur undanfarin ár. Markmið úrvinnslunnar er að vinna hagnýtar upplýsingar í hendur forvarnarhópa og bæjaryfirvalda til stefnumótunar og áætlunargerðar í málefnum ungmenna í sveitarfélaginu, styrkja faglegan grundvöll stefnumótunar, auka virði samfélagsins gagnvart börnum og stuðla að virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Bæjarráð staðfestir samning.

  3. Bæjarráð, fundur 688 liður 20.5

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 92“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 301 liður 2.13

    Fundargerðin „Bæjarráð - 688“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  5. Bæjarstjórn, fundur 301 liður 6.5

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 92“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is