Barnaskólinn á Eskifirði
Mál 1810021 Fyrst á dagskrá 23. nóvember 2020, síðast 3. desember 2020. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: EskifjörðurSkólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 276 liður 3
Lögð fram fundargerð vegna opnunar tilboða í stoðvegg við gamla Barnaskólann á Eskifirði frá 17. nóvember 2020. Eitt tilboð barst frá MVA uppá 9.912.250 kr.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tilboðið fyrir sitt leyti. Afgreiðslu vegna fjármögnunar er vísað til bæjarráðs þar sem viðauki vegna verksins upp á 6.0 mkr. er í fjárhagsáætlun þessa árs.
-
Bæjarráð, fundur 690 liður 5
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tilboði frá MVA ehf. í byggingu stoðveggs við Gamla barnaskólann á Eskifirði. Lögð fram fundargerð fá Mannvit hf. vegna opnunar tilboða í stoðvegg við gamla Barnaskólann á Eskifirði frá 17. nóvember 2020. Eitt tilboð barst frá MVA uppá 9.912.250 kr. Jafnframt er afgreiðslu vegna fjármögnunar vísað til bæjarráðs þar sem viðauki vegna verksins upp á 6.0 m. kr. er á fjárhagsáætlun þessa árs.
Bæjarráð samþykkir að tilboði verði tekið og fjármögnun skoðuð þegar fyrir liggur endanlegur verktími.
-
Bæjarráð, fundur 690 liður 14.3
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 276“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 302 liður 3.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 690“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 302 liður 4.3
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 276“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.