Kröfur á hendur Jöfnunarsjóði
Mál 2011202 Fyrst á dagskrá 30. nóvember 2020, síðast 3. desember 2020. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Bæjarráð, fundur 690 liður 3
Framlögð áskorun sveitarfélagsins Skagafjarðar er varðar kröfu Reykjavíkurborgar á hendur Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Lesa alla bókunina (128 orð til viðbótar)
Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur undir með bókun byggðarráðs Skagafjarðar hvað varðar kröfu Reykjavíkurborgar á hendur Jöfnunarsjóði sveitarfélaga upp á 8,7 milljarða kr. vegna meintra vangoldinna framlaga úr sjóðnum. Bæjarráð Fjarðabyggðar hvetur borgarstjórn Reykjavíkur til að endurskoða áðurnefnda kröfu því nái hún fram að ganga þá mun Jöfnunarsjóðurinn þurfa að greiða kröfuna úr sínum sjóðum og þannig um leið þurfa að skerða framlög sín sem því nemur til sveitarfélaganna. Slíkt mun verða mörgum sveitarfélögum mikið áfall og verða til þess að allir tapa í þessu máli. Um leið og minnt er á yfirburðastöðu Reykjavíkur sem höfuðborgar landsins gagnvart öðrum sveitarfélögum þá hvetur bæjarráð Fjarðabyggðar borgaryfirvöld að leita annara leiða við ríkisvaldið til að ná fram þeim leiðréttingum sem þau telja sig eiga inni frekar en í gegnum málarekstur gagnvart Jöfnunarsjóðnum.
-
Bæjarstjórn, fundur 302 liður 3.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 690“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.