Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

730 Hraun 1 - Óverleg breyting á deiliskipulagi, fjölgun lóða

Mál 2009105 Fyrst á dagskrá 16. október 2020, síðast 5. nóvember 2020. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: LóðirSkipulag

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 273 liður 12

    Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulaginu Hraun 1 á Mjóeyrarhöfn. Tillagan gerir ráð fyrir gerð nýrra lóða fyrir vakthús og spennistöð við Hraun 11 og 13. Tillagan var ekki grenndarkynnt þar sem hún hefur bara áhrif á lóðarhafa og Fjarðabyggð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu deiliskipulaginu Hraun 1. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

  2. Bæjarráð, fundur 684 liður 23.12

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 273“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 300 liður 20

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu á deiliskipulagi.

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar staðfestingu á óverulegri breytingu á deiliskipulaginu Hraun 1 á Mjóeyrarhöfn þar sem gert er ráð fyrir gerð nýrra lóða fyrir vakthús og spennistöð við Hraun 11 og 13 en tillaga var ekki grenndarkynnt þar sem hún hefur einvörðungu áhrif á lóðarhafa og Fjarðabyggð.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi Hraun 1 á Mjóeyrarhöfn.

  4. Bæjarstjórn, fundur 300 liður 6.12

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 273“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is