Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

750 Hafnargata - Umsókn um svæði fyrir skemmu

Mál 2010089 Fyrst á dagskrá 16. október 2020, síðast 5. nóvember 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Hafnir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 273 liður 7

    Lagt fram bréf Fiskeldis Austfjarða varðandi stöðuleyfi fyrir tjaldskemmu, dagsett 10. september 2020. Óskað er eftir svæði nálægt höfninni á Fáskrúðsfirði þar sem hægt væri að koma fyrir tjaldskemmu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að staðsetning tjaldskemmu þurfi að vera innan úthlutaðra lóða og að reising tjaldskemmu sé byggingarleyfisskyld. Sviðsstjóra umhverfis- og skiplagssviðs er falið að finna lausnir í samráði við bréfritara.

  2. Bæjarráð, fundur 684 liður 23.7

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 273“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 300 liður 6.7

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 273“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is