Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 272

12. október 2020, kl. 16:00 til 18:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Kristjana Guðmundsdóttir, aðalmaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Magnús Karl Ásmundsson, varamaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 684 liður 22

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 272 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 300 liður 5

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 12. október sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2021

    Mál 2009117 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2021, hækki um 2,4 % 1. janúar 2021. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  2. 2. Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2021

    Mál 2009130 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að gjaldskrá fjarvarmaveitu á Norðfirði vegna 2021, hækki um 2,4% 1.janúar 2021. Gjaldskrá vegna fjarvarmaveitu á Reyðarfirði hækki um 10% 1. janúar 2021 þar sem orkuinnkaup vegna hennar hafa hækkað á milli ára. Fjarðabyggð er eini notandi fjarvarmaveitunnar á Reyðarfirði. Endanlegri afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  3. 3. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027

    Mál 1810136 Allur ferill málsins

    Vinnufundur eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar vegna endurskoðunar aðalskipulags