Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 267

24. ágúst 2020, kl. 16:00 til 17:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Sindri Már Smárason, varamaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 676 liður 13

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 24. ágúst sl. lögð fram til afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 296 liður 3

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 24. ágúst sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárréttir í Fjarðabyggð

    Mál 1808042 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra er varðar lagfæringu fjárrétta fyrir haustið 2020, dagsett 18. ágúst 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögur í minnisblaði umhverfisstjóra er varða lagfæringu Kollaleiruréttar fyrir haustið ásamt gerð aðhalds á Eskifirði og nauðsynlegu viðhaldi aðalrétta og felur henni að koma þeim áfram til framkvæmdasviðs.

  2. 2. Ágangur sauðfjár í þéttbýli á Eskifirði

    Mál 2008012 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf íbúa þar sem kvartað er undan ágangi sauðfjár í þéttbýli.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að gera tillögur að aðgerðum vegna ágangs sauðfjár í þéttbýli og leggja fyrir nefndina og bregðast við erindi bréfritara.

  3. 3. Beiðni um umsögn vegna sjókvíeldis á 10.000 tonnum af laxi í Reyðarfirði

    Mál 2008013 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Matvælastofnunar, dagsett 6. ágúst 2020, um umsögn vegna umsóknar Laxa eignarhaldsfélags ehf á 10.000 tonna eldi í Reyðarfirði í samræmi við 7. gr. laga nr. 71/2008 um fiskeldi. Matvælastofnun hefur til meðferðar umsókn um rekstrarleyfi frá Löxum eignarhaldsfélagi ehf. vegna 10.000 tonna hámarkslífmassa á frjóum laxi í sjókvíum í Reyðarfirði. Laxar eignarhaldsfélag eru fyrir með gild rekstrarleyfi í Reyðafirði. Verði af leyfisútgáfu rúmast hámarkslífmassi leyfa Laxa eignarhaldsfélags innan bæði burðarþolsmats og áhættumats Hafrannsóknarstofnunar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur bæjarstjóra að gera umsögn Fjarðabyggðar.

  4. 4. Deiliskipulag Skólar 1, óveruleg breyting, íþróttahús

    Mál 2008103 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulaginu Skólar 1 á Reyðarfirði. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits grunnskóla svo gera megi ráð fyrir nýju íþróttahúsi. Tillagan var ekki grenndarkynnt þar sem hún hefur bara áhrif á lóðarhafa og Fjarðabyggð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu deiliskipulaginu Skólar 1. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

  5. 5. 760 Sæberg 15 - Umsókn byggingarleyfi - viðbygging

    Mál 2008098 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Elís Péturs Elíssonar, dagsett 10. ágúst 2020, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 35,4 m2 bílskúr og 35, 4 m2 sólskála við einbýlishús hans að Sæbergi 15 á Breiðdalsvík.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  6. 6. 750 Hafnargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi, iðnaðarhúsnæði

    Mál 2008101 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Loðnuvinnslunnar hf, dagsett 21. ágúst 2020, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 732,2 m2 og 7.062 m3 mjölskemmu á lóð fyrirtækisins að Hafnargötu 1 á Fáskrúðsfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  7. 7. 735 Fossgata 3 - Umsókn um lóð

    Mál 2008028 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Helgu Bjarnason, dagsett 11. ágúst 2020, þar sem sótt er um lóðina við Fossgötu 3 á Eskifirði undir íbúðarhúsnæði. Gert er ráð fyrir að húsnæði sem nú er staðsett á Kirkjustíg 7 á Eskifirði verði flutt á lóðina.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  8. 8. 740 - Melagata 4 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2007091 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Höllu Kolfinnu Þorfinnsdóttur, dagsett 27. júlí 2020, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hennar að Melagötu 4 á Norðfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  9. 9. 735 - Hátún 12 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2007080 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Kristbjargar J. Hallgrímsdóttur, dagsett 22. júlí 2020, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hennar að Hátúni 12 á Eskifirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  10. 10. Afnot af fyrrum skrifstofuhúsnæði Eskju

    Mál 2008072 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Svövu Hlínar Hákonardóttur, dagsett 17. ágúst 2020, þar sem óskað er eftir afnotum á hluta húsnæðisins að Strandgötu 39 á Eskifirði undir jógakennslu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að bréfritari fái að nýta húsnæðið meðan unnið er að úttekt á því og framtíðarnotum. Jafnframt felur nefndin framkvæmdasviði að vinna úttekt húsinu og leggja fyrir nefndina.

  11. 11. Skýrsla um starfsemi Ofanflóðanefndar 2009 - 2017

    Mál 2008079 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, dagsett 17. ágúst 2020, þar sem kynnt er skýrsla um starfsemi Ofanflóðanefndar á árunum 2009 til 2017.

  12. 12. Ályktun Veiðfélags Breiðdælinga vegna fyrirhugaðs laxeldis í Stöðvarfirði

    Mál 2008048 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar ódagsett ályktun Veiðifélags Breiðdælinga er varðar fyrirætlanir um fiskeldi í Stöðvarfirði.

    Sveitarfélagið hefur þegar sent inn athugasemdir vegna fyrirhugaðs laxeldis í Stöðvarfirði.

  13. 13. Landbúnaðarnefnd - 26

    Fundargerðin í heild

    Samþykkt

    1. 13.1 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    2. 13.2 Fjallskil og gangnaseðill 20202008059