Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 268

31. ágúst 2020, kl. 16:00 til 18:40, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Sindri Már Smárason, varamaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 677 liður 12

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 31. ágúst tekin til afgreiðslu

  • Bæjarstjórn, fundur 297 liður 3

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 31.ágúst sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Vegaframkvæmdir

    Mál 2004031 Allur ferill málsins

    Gestur fundarins er Sveinn Sveinsson svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Austurlandi. Kynntar núverandi og fyrirhugaðar framkvæmdir Vegagerðarinnar í Fjarðabyggð á næstu árum ásamt öðrum áherslum sem nefndin vil koma á framfæri við Vegagerðina.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar kynninguna.

  2. 2. Trjákurl til húshitunar

    Mál 1905004 Allur ferill málsins

    Gestur fundarins er Einar Birgir Kristjánsson framkvæmdarstjóri Tandrabergs ehf og Magnús Þorsteinsson. Kynntar hugmyndir um kyndistöð er nýtir trjákurls til húshitunar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar kynninguna.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2021

    Mál 2005018 Allur ferill málsins

    Farið yfir framkvæmdir og verkefni ársins 2021 og verklag við komandi fjárhagsáætlunargerð.

  4. 4. Snjómokstur í Fjarðabyggð

    Mál 2006083 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs vegna fyrirkomulags snjómoksturs, dagsett 27. ágúst 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna tillögu að verklagi við útboð áfram og leggja fyrir nefndina að nýju.

  5. 5. Framkvæmdir við Lambeyrarbraut

    Mál 2008087 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Hreggviðs Sigurþórssonar f.h. íbúa við Lambeyrarbraut, er varðar óánægju þeirra með hönnun og útfærslu ofanflóðavarna við Lambeyrarána, dagsett 18. ágúst 2020. Fundað hefur verið með íbúum við götuna og var athugasemdum þeirra komið á framfæri við hönnuði ofanflóðamannvirkjanna. Bæjarráð vísar athugasemdum til eigna,- skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar. Unnið verður áfram með málið í tengslum við framkvæmdir.

  6. 6. Vatnstjón á Eyrarstíg 1

    Mál 1801118 Allur ferill málsins

    Lögð fram greinargerð Adolfs Guðmundssonar, lögmanns, vegna vatnstjóns á kjallara á Eyrarstíg 1, Reyðarfirði, dagsett 12. maí 2020. Lagt fram minnisblað frá Jóni Jónssyni, lögmanni, sem mótsvar greinargerðarinnar, dagsett 25. apríl 2020. Jón hafði áður gefið álit árið 2019 og taldi bótaskyldu ekki vera til staðar m.t.t. skýrslu Stapa Jarðfræðistofu frá 2018. Málið er jafnframt til vinnslu í bæjarráði og hefur bæjarstjóra verið falið að afla frekari gagna í því.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd mun taka málið til frekari umfjöllunar þegar frekari gögn liggja fyrir.

  7. 7. 760 Norðurdalsá - Framkvæmdaleyfi vegna malarnáms

    Mál 2008130 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar um efnistöku úr Norðurdalsá í Breiðdal, dagsett 26. ágúst 2020. Gert er ráð fyrir að taka um 6- 700 m3 af möl úr áreyrum án þess að fara í rennandi vatn.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir efnistökuna.

  8. 8. Handhafabreyting á starfsleyfi Laxa fiskeldis ehf. í Reyðarfirði

    Mál 2008131 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Umhverfisstofnunar, dagsett 25. ágúst 2020, um handhafabreytingu á starfsleyfi Laxa fiskeldis ehf. í Reyðarfirði.