NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 269
7. september 2020, kl. 16:00 til 17:20, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Sindri Már Smárason, varamaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 678 liður 14
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. september sl. lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 297 liður 4
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7.september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Dýraeftirlit 2020
Mál 2001048 Allur ferill málsins
Kynnt staða dýralæknamála í Fjarðabyggð.
-
2. Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði
Mál 1908051 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði varðandi lausagöngu sauðfjár í Stöðvarfirði, dagsett 1. september 2020, þar sem þess er krafist að sveitarfélagið framfylgi beitarfriðun í Stöðvarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar í svar sveitarfélagsins til landeiganda Óseyrar vegna sambærilegs erindis dagsett 31. janúar 2020.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2021
Mál 2005018 Allur ferill málsins
Lagður fram rammi að fjárhagsáætlun fyrir málaflokka eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar á árinu 2021 sem bæjarráð hefur úthlutað. Sviðsstjórum falið að vinna drög að áætlun og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.
-
4. 740 Breiðablik 5 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2008104 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Önnu Herbertsdóttur, dagsett 22. ágúst 2020, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hennar að Breiðabliki 5 á Norðfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
5. Trjákurl til húshitunar
Mál 1905004 Allur ferill málsins
Í kjölfar kynningar forsvarsmanna Tandrabergs ehf á síðasta fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar felur nefndin umhverfisstjóra að vinna minnisblað vegna mögulegrar uppsetningar og kostnað við að koma fyrir loftgæðamælum og leggja fyrir nefndina.
-
6. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2020
Mál 2002144 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 157. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands frá 1. september 2020.