NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 270
21. september 2020, kl. 16:00 til 18:55, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Kristjana Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
Mál 1810136 Allur ferill málsins
Kynnt staða endurskoðunar Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd mun hefja vinnufundi um endurskoðun aðalskipulags á næstu vikum.
-
2. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
Mál 1704067 Allur ferill málsins
Lögð fram Umhverfisstefna Fjarðabyggðar eftir umfjöllun allra nefnda. Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, dagsett 18. september 2020, er varðar umræður nefnda um stefnuna.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að vinna stefnuna áfram og leggja fyrir nefndina að nýju til umfjöllunar.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2021
Mál 2005018 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og sviðsstjórar framkvæmdasviðs og umhverfis- og skipulagssviðs fara yfir launa- og fjárhagsáætlanirnar fyrir árið 2021. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna starfs- og fjárhagsáætlunar umhverfis- og skipulagssviðs, dagsett 18. september 2020. Lögð fram viðhaldsáætlun framkvæmdasviðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir launaáætlun og felur sviðsstjórum að vinna áfram að áætlunargerðinni. Tekið fyrir á næsta fundi.
-
4. Snjómokstur í Fjarðabyggð
Mál 2006083 Allur ferill málsins
Lagt fram að nýju minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs vegna fyrirkomulags snjómoksturs, dagsett 27. ágúst 2020.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu sviðsstjóra framkvæmdasviðs að fyrirkomulagi snjómoksturs og felur honum vinnslu málsins.
-
5. Sorpmál í Fjarðabyggð
Mál 1909099 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að minnisblaði sviðsstjóra framkvæmdasviðs um heimsókn til Terra ásamt tillögum að framtíðarskipulagi sorpmiðstöðvar Fjarðabyggðar, dagsett 17. september 2020.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drögin og tillögur í þeim og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið áfram og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
6. 740 Tandrastaðir, Vatnsveita
Mál 2009072 Allur ferill málsins
Lagður fram til samþykktar viðauki við leigusamning við landeigendur að Tandrastöðum vegna vatnsbóls Vatnsveitu Fjarðabyggðar á jörðinni.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs.
-
7. Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Lambeyrará
Mál 1702150 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar niðurstaða útboðs vegna ofanflóðavarna í Lambeyrará á Eskifirði sem opnuð 8 september síðastliðinn. Eitt tilboð barst frá Héraðsverki ehf og var það 30,7% yfir kostnaðaráætlun. Tilboðinu hefur verið hafnað en bjóðenda boðið til samningskaupa.
-
8. 730 Hraun 9b - umsókn um lóð, spennistöð
Mál 2009063 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar, dagsett 10. september 2020, þar sem sótt er um lóðina við Hraun 9b á Mjóeyrarhöfn undir spennistöð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og gera óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraun 1 svo hægt sé að gera ráð fyrir lóðinni. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
-
9. Malartaka í Neskaupstað
Mál 2009151 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn um efnistöku í Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki fallist á efnistöku sökum nálægðar við sjóinntök-, grjótvarnir og uppfyllingar.
-
10. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
Mál 1904072 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tíma- og verkáætlun frá Eflu verkfræðistofu hf. um gerð kostnaðarmats á heildstæðu leiðarneti almenningssamgangna fyrir Fjarðabyggð. Bæjarráð hefur samþykkt tíma- og verkáætlun og falið bæjarstjóra að vinna að málinu áfram.