Samgöngumál í Fjarðabyggð
Mál 2004031 Fyrst á dagskrá 14. apríl 2020, síðast 17. september 2020. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í hnotskurn
Málið fjallar um fyrirhugaðar framkvæmdir Vegagerðarinnar í Fjarðabyggð og áherslur sveitarfélagsins um hönnun Suðurfjarðarvegar og nýjar brýr í stað einbreiðra brúa.1 Í september 2020 samþykkti bæjarstjórn bókun þar sem skorað er á stjórnvöld að flýta nýrri tvíbreiðri brú yfir Sléttuá í Reyðarfirði og endurbótum á Suðurfjarðarvegi.5
Staðan
Bæjarstjórn fól bæjarritara að koma bókuninni á framfæri.5
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Bæjarráð, fundur 658 liður 2
Vegaframkvæmdir
Bæjarráð fór yfir framkvæmdir Vegagerðarinnar, lagði áherslu á að hönnun Suðurfjarðarvegar og nýrra brúa í botni Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar yrði flýtt og óskaði eftir fundi með forstjóra Vegagerðarinnar.
Endursögn gervigreindar
Farið yfir framkvæmdir Vegagerðarinnar næstu misseri á Austurlandi.
Fyrirhugaðar framkvæmdir næstu ára hafa verið frumhannaðar.
Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur þunga áherslu á að flýtt verði hönnun Suðurfjarðarvegar og þar sérstaklega hönnun framkvæmda fyrir botni Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar. Sérstaklega verði horft til hönnunar á nýjum brúm sem leysa af einbreiðar brýr á vegakaflanum þannig að þær komist til framkvæmda á næstu misserum.
Bæjarráð óskar eftir fundi með forstjóra Vegagerðarinnar til að fylgja málinu eftir.
-
Bæjarstjórn, fundur 290 liður 3.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 658“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Vegaframkvæmdir
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 268 liður 1
Vegaframkvæmdir
Sveinn Sveinsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Austurlandi, kynnti núverandi og fyrirhugaðar framkvæmdir Vegagerðarinnar í Fjarðabyggð og nefndin þakkaði kynninguna.
Endursögn gervigreindar
Gestur fundarins er Sveinn Sveinsson svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Austurlandi. Kynntar núverandi og fyrirhugaðar framkvæmdir Vegagerðarinnar í Fjarðabyggð á næstu árum ásamt öðrum áherslum sem nefndin vil koma á framfæri við Vegagerðina.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar kynninguna.
-
Bæjarráð, fundur 677 liður 12.1
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 268“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Vegaframkvæmdir
-
Bæjarstjórn, fundur 297 liður 12
Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum sameiginlega bókun, sem forseti bæjarstjórnar mælti fyrir, þar sem skorað er á samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að tryggja fjármagn á komandi ári til nýrrar tvíbreiðrar brúar yfir Sléttuá og að flýta endurbótum á Suðurfjarðarvegi.
Endursögn gervigreindar
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir sameiginlegri bókun bæjarstjórnar sem lögð er fram.
Lesa alla bókunina (203 orð til viðbótar)
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar á Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að flýta gerð nýrrar tvíbreiðrar brúar yfir Sléttuá í Reyðarfirði sem er á þjóðvegi eitt. Í kjölfar gerðar Fáskrúðsfjarðargangna átti að fara í endurgerð brúar yfir Sléttuá og vegtengingar frá henni til þéttbýlisins á Reyðarfirði en ekki enn eru þær áætlanir komnar lengra en á teikniborðið frá árinu 2006. Við slíkt er ekki hægt að una enda er núverandi brú yfir Sléttuá umferðarþyngsta einbreiða brúin á Austurlandi samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar og ekki þarf frekari vitnanna við hvað varðar slysahættu því samhliða.
Því skorar bæjarstjórn Fjarðabyggðar á stjórnvöld að tryggja nú fjármagn á komandi ári til að hægt verði að ráðast í verkið innan fjárfestingarátaks stjórnvalda sem miðar að því að bæta umferðaröryggi með að fækka einbreiðum brúm á þjóðvegi eitt um landið. Um leið verði þá framkvæmdum við endurbætur á Suðurfjarðarvegi um Fáskrúðs- og Stöðvarfjörð flýtt í núverandi samgönguáætlun því ekki er minni þörf á endurbótum þess vegar eins og Fjarðabyggð hefur margoft bent á við samgönguyfirvöld og barist fyrir. Ekki síst við einbreiðar brýr sem þar eru í botni fjarðanna og þurfa að komast í forgang.
Bæjarstjórn staðfestir bókun með 9 atkvæðum og felur bæjarritara að koma henni á framfæri.
-
Bæjarstjórn, fundur 297 liður 3.1
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 268“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Vegaframkvæmdir