Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 658

14. apríl 2020, kl. 08:30 til 11:15, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 290 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2019, kynning TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2001126 Allur ferill málsins

    Trúnaðarmál.

    Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2019 lagður fram sem trúnaðarmál ásamt drögum að endurskoðunarskýrslu sem jafnframt er trúnaðarmál.

    Bæjarráð vísar ársreikningi fyrir Fjarðabyggð og stofnanir árið 2019 til fyrri umræðu í bæjarstjórn 16. apríl nk. Ársreikningur verður undirritaður á fundi bæjarráðs fimmtudaginn 16. apríl nk. fyrir bæjarstjórnarfund.

  2. 2. Vegaframkvæmdir

    Mál 2004031 Allur ferill málsins

    Farið yfir framkvæmdir Vegagerðarinnar næstu misseri á Austurlandi.

    Fyrirhugaðar framkvæmdir næstu ára hafa verið frumhannaðar.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur þunga áherslu á að flýtt verði hönnun Suðurfjarðarvegar og þar sérstaklega hönnun framkvæmda fyrir botni Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar. Sérstaklega verði horft til hönnunar á nýjum brúm sem leysa af einbreiðar brýr á vegakaflanum þannig að þær komist til framkvæmda á næstu misserum.

    Bæjarráð óskar eftir fundi með forstjóra Vegagerðarinnar til að fylgja málinu eftir.

  3. 3. 735 Helgustaðir - Umsókn um lóð undir spennistöð

    Mál 2003151 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs stofnun lóðar undir spennistöð í landi Helgustaða. Fyrirhugað er að rafvæða með landtengingu sjókvíar fyrirtækisins úti fyrir ströndinni sbr. bréf Laxa Fiskeldi ehf, dagsett 26. mars 2020.

    Bæjarráð samþykkir að lóð í landi Helgustaða verði stofnuð og felur umhverfis- og framkvæmdasviði að vinna að stofnun lóðarinnar.

  4. 4. Starfshópur um tjaldsvæði

    Mál 2004044 Allur ferill málsins

    Umræða tekin um skipulag- og framtíðaruppbyggingu tjaldsvæða.

    Bæjarráð samþykkir að skipaður verði starfshópur sem fjalli um framtíðaruppbyggingu tjaldsvæðanna í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð felur bæjarritara að setja upp erindisbréf fyrir starfshópinn og tekur málið upp á næsta fundi bæjarráðsins.

  5. 5. Aðalfundur Lánasjóðs Sveitarfélaga ohf - frestun aðalfundar 2020

    Mál 2004037 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Lánasjóði Sveitarfélaga til allra sveitarstjórna. Þar kemur m.a. fram að nýr fundardagur aðalfundar sjóðsins verði tilkynntur þegar samkomubanni vegna Covid-19 faraldursins hefur verið aflétt.

  6. 6. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 256

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 6.1 Leyfisgjald hunda - sundurliðun2003148
    2. 6.2 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 20202001149
    3. 6.3 Útikörfuboltavöllur2003085
    4. 6.4 Viðspyrna af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf2003122
    5. 6.5 Bændur á Austurlandi - Covid 192003146
    6. 6.6 Samráðsfundir og viðbrögð vegna coronaveiru COVID192002090
    7. 6.7 735 Helgustaðir - Umsókn um lóð undir spennistöð2003151
    8. 6.8 Eignir Eskju við Strandgötu1811177
    9. 6.9 740 Dreifbýli - umsókn um að leggja göngu- og reiðleið meðfram Norðfjarðará2003029
    10. 6.10 Umsókn um garðefnasvæði á Reyðarfirði2004026
    11. 6.11 755 Hvalnes - Framkvæmdaleyfi, vatnsból2004027
    12. 6.12 735 - Deiliskipulag, Eskifjörður-miðbær1502041
  7. 7. Félagsmálanefnd - 132

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 7. apríl sl. lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 7.1 Samráðsfundir og viðbrögð vegna coronaveiru COVID192002090
    2. 7.2 Bændur á Austurlandi - Covid 192003146
    3. 7.3 Viðspyrna af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf2003122
    4. 7.4 Styrktarsjóður EBÍ 20202003110
    5. 7.5 666.mál til umsagnar frumvarp til laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða2003141
    6. 7.6 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 162003011F