Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 266

11. ágúst 2020, kl. 16:00 til 17:20, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 674 liður 12

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 266 lögð fram til afgreiðslu.

    Bæjarráð í umboð bæjarstjórnar staðfestir samhljóða fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

Dagskrá

  1. 1. 750 - Stekkholt 20 - Umsókn um lóð

    Mál 2007089 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Elínar Helgu Kristjánsdóttur, dagsett 27. júlí 2020, þar sem sótt er um lóðina við Stekkholt 17 á Fáskrúðsfirði undir íbúðarhúsnæði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  2. 2. 740 Naustahvammur 76 - byggingarleyfi, iðnaðarhúsnæði

    Mál 2007107 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar, dagsett 30. júlí 2020, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 374 m2 og 1.891,7 m3 iðnaðarhúsnæði á lóð hafnarinnar við Naustahvammi 76 á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  3. 3. Naustahvammur 64 - byggingarleyfi, iðnaðarhúsnæði

    Mál 2007090 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fiskmarkaðs Austurlands hf, dagsett 27. júlí 2020, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 363 m2 og 1.712,6 m3 iðnaðarhúsnæði á lóð fyrirtækisins að Naustahvammi 64 á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  4. 4. 730 Brekkugerði 5 - Umsókn um byggingarleyfi, íbúðarhús

    Mál 2006084 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Einars Vilhelms Einarssonar, dagsett 16. júní 2020, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 157,2 m2 og 620,7 m3 einbýlishús á lóð hans að Brekkugerði 5 á Reyðarfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  5. 5. Hjallaleira 23 - byggingarleyfi, malbikunarstöð

    Mál 2006149 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Malbikunarstöðvar Austurlands ehf, dagsett 26. júní 2020, þar sem sótt er um leyfi til að byggja tímabundið til fimm ára 427 m2 og 1.205 m3 vinnubúðir á lóð fyrirtækisins að Hjallaleiru 25 á Reyðarfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  6. 6. 730 Heiðarvegur 14a - Framkvæmdaleyfi, jarðvinna íþróttahúss

    Mál 2008008 Allur ferill málsins

    Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn framkvæmdasviðs Fjarðabyggðar, dagsett 6. ágúst 2020, þar sem óskað er eftir leyfi til að jarðvegsskipta undir nýtt íþróttahús á Reyðarfirði. Verkið felur í sér gröft, lageringu burðarhæfs efnis innan framkvæmdasvæðisins, brottakstur efnis og endurfyllingu. Uppgröftur er um 8.900 m3 og endurfylling með um 1.500 m3.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  7. 7. 760 Hrafnagilslækur - efnistaka

    Mál 2008006 Allur ferill málsins

    Lögð fram ódagsett umsókn Vegagerðarinnar um efnistöku úr Hrafnagilslæk í Breiðdal. Gert er ráð fyrir að taka um 1.200 m3 af möl á um 2.300 m2 svæði úr áreyrum án þess að fara í rennandi vatn.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir efnistökuna.

  8. 8. Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Lambeyrará

    Mál 1702150 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar uppfærð hönnun á ofanflóðavörnum við Lambeyrará á Eskifirði. Verkið verður boðið út á vegum Framkvæmdasýslu ríkisins á næstu dögum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur formanni og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að hitta íbúa við Lambeyrarbraut og kynna einnig uppfærða hönnun varnarmannvirkja.

  9. 9. Trjákurl til húshitunar

    Mál 1905004 Allur ferill málsins

    Atvinnu- og þróunarstjóri Fjarðabyggðar fór yfir stöðu verkefnisins og fund sem hann átti með Tandraberg.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að fá forsvarsmenn Tandrabergs til að koma á fund nefndarinnar og kynna verkefnið frekar. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að fara yfir deiliskipulag Neseyrar varðandi endurskoðun þess.

  10. 10. Sorpmál í Fjarðabyggð

    Mál 1909099 Allur ferill málsins

    Kynnt staða mála varðandi framtíðarfyrirkomulag á sorpmálum í Fjarðabyggð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur formanni og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að hefja undirbúning að stefnu Fjarðabyggðar í sorpmálum og leggja fyrir nefndina að nýju.