Kauptilboð í Nesgötu 5 Neskaupstað (Sigfúsarhús) frá Raföldu ehf.
Mál 2008046 Fyrst á dagskrá 17. ágúst 2020, síðast 3. september 2020. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Bæjarráð, fundur 674 liður 9
Af fundi vék Jón Björn Hákonarson við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar. Á fund mætir Pálína Margeirsdóttir við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.
Lagt fram kauptilboð Raföldu ehf. í fasteignina Nesgötu 5 í Neskaupstað - Sigfúsarhús. Bæjarráð felur fjármálastjóra að gera gagntilboð vegna sölu eignarinnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 295 liður 6.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 674“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 675 liður 7
Jón Björn Hákonarson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar. Pálína Margeirsdóttir mætir á fund við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.
Lagt fram nýtt tilboð Raföldu ehf. í fasteignina Nesgötu 5 í Neskaupstað, Sigfúsarhús.
Bæjarráð samþykkir tilboðið og felur bæjarstjóra undirritun og frágang skjala vegna kaupanna.
-
Bæjarstjórn, fundur 296 liður 2.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 675“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.