Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSafnanefnd

Safnanefnd, fundur 15

4. júní 2020, kl. 16:00 til 18:30, Safnahúsið í Neskaupstað. Fundargerð ritaði Pétur Sörensson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Magni Þór Harðarson, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Anton Þór Helgason, varamaður

Starfsmenn

  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2021

    Mál 2005019 Allur ferill málsins

    Formaður fór yfir starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2021 hvað varðar safnamál. Safnanefnd leggur áherslu á að skoðað verði í fjárhagsáætlunargerð með aukið starfshlutfall við Safnastofnun. Jafnframt var farið yfir hugmyndir Safnanefndar af fjárfestingarverkefnum fyrir söfnin. Vísað til menningar- og nýsköpunarnefndar.

  2. 2. Fyrirhuguð uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins.

    Mál 1812130 Allur ferill málsins

    Formaður fór yfir stöðu mála og kynnti hugmyndir um uppbyggingu safnsins.

    Þá var einnig lögð fram drög af kostnaðaráætlun til að ljúka endurgerð bragga við Stríðsárasafnið sem Safnanefnd leggur áherslu á.

    Vísað til fjárhagsáætlunar menningar- og nýsköpunarnefndar 2021.

  3. 3. Stríðsárasafn á Reyðarfirði - Grundvöllurinn

    Mál 1906027 Allur ferill málsins

    Skýrsla lögð fram til kynningar og umræðu í Safnanefnd. Safnanefnd þakkar nemendum safnadeildar fyrir vel unna skýrslu.

  4. 4. Stjórn Sjóminjasafns Austurlands.

    Mál 1806162 Allur ferill málsins

    Safnanefnd ræddi málefni Sjóminjasafns Austurlands og Jensenshúss.

  5. 5. Egilsbraut 4 - skjalasafn

    Mál 1907058 Allur ferill málsins

    Málefni skjalageymslu Fjarðabyggðar rædd og formanni falið að skoða málin frekar og leggja fyrir nefndina að nýju.

  6. 6. Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2020

    Mál 2002186 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Héraðsskjalasafns Austfirðinga lögð fram til kynningar.

  7. 7. Þjónustusamningur við eldri borgara á Reyðarfirði 2020

    Mál 2006004 Allur ferill málsins

    Þjónustusamningur Safnastofnunar og Félags Eldriborgara á Reyðarfirði lagður fram til kynningar. Safnanefnd samþykkir þjónustusamninginn fyrir sitt leyti.

  8. 8. Þjónustusamningur við félag eldri borgarar í Neskaupstað 2020

    Mál 2006005 Allur ferill málsins

    Þjónustusamningur Safnastofnunar og Félags Eldriborgara í Neskaupstað lagður fram til kynningar. Safnanefnd samþykkir þjónustusamninginn fyrir sitt leyti.

  9. 9. Þjónustusamningur við eldri borgara á Eskifirði 2020

    Mál 2006006 Allur ferill málsins

    Þjónustusamningur Safnastofnunar og Félags Eldriborgara á Eskifirði lagður fram til kynningar. Safnanefnd samþykkir þjónustusamninginn fyrir sitt leyti.