Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 135

9. júní 2020, kl. 16:15 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 667 liður 22

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 135 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 294 liður 10

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 9. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ungt fólk - 8.-10.bekkur könnun

    Mál 2004161 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja niðurstöður úr könnuninni Ungt fólk 2020. Könnunin var lögð var fyrir alla nemendur í 8., 9. og 10. bekk á Íslandi í febrúar síðastliðnum. Í rannsókninni var að þessu sinni bætt við spurningum um svefnvenjur, koffínneyslu og rafrettunotkun. Niðurstöður lagðar fram til kynningar í félagsmálanefnd.

  2. 2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (notendaráð), 838. mál

    Mál 2005163 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (notendaráð), 838. mál.

  3. 3. Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021

    Mál 2004009 Allur ferill málsins

    Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd drögum að ferðamálastefnu fyrir Fjarðabyggð ásamt minnisblaði auk tillögu um að meðal verkefna menningar- og nýsköpunarnefndar verði tjaldsvæði og áfangastaðir ferðamanna í Fjarðabyggð ásamt því að yfirstjórn þeirra verkefna verði falin stjórnsýslu- og þjónustusviði. Bæjarráð hefur staðfestt tillögur um tilfærslu yfirstjórnar tjaldsvæða og áfangastaða.

    Bæjarráð hefur einnig samþykkt tillögu í minnisblaði um að skipa teymi á stjórnsýslu- og þjónustusviði sem í sitja forstöðumaður safnastofnunar, forstöðumaður menningarstofu, atvinnu- og þróunarstjóri og upplýsinga- og kynningarfulltrúi. Verkefni hópsins er að skoða og þróa hugmyndir um aðkomu skapandi sumarstarfa í samvinnu við verkefnastjóra skapandi sumarstarfa. Ferðamálastefnu vísað til kynningar í öllum fastanefndum.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2021

    Mál 2005022 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur minnisblað félagsmálanefndar vegna starfs- og fjárhagsáætlunar 2021.

    Nefndin samþykkir tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.