Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 743

14. febrúar 2022, kl. 08:30 til 09:43, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 327 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um viðræður um samstarf við byggingu leiguíbúða

    Mál 2202043 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi og kynning frá Bjargi íbúðafélagi hses um viðræður um úthlutun lóðar og veitingu stofnframlags vegna byggingar leiguíbúða. Bæjarráð felur fjármálastjóra að ræða við Bjarg.

  2. 2. Erindisbréf starfshóps um framtíðarsýn Stríðsárasafns

    Mál 2111093 Allur ferill málsins

    Framlengja þarf skipunartíma starfshóps um framtíðarsýn Íslenska Stríðsárasafnsins. Bæjarráð samþykkir að framlengja skipunartíma ráðsins til 21. apríl. Bæjarráð samþykkir jafnframt að formaður bæjarráðs taki sæti í starfshópnum.

  3. 3. 740 Strandgata 18 - Umsókn um lóð

    Mál 2109239 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Nestaks ehf, dagsett 29. september 2021, þar sem sótt er um lóðirnar við Strandgötu 18a og 18b á Norðfirði undir einbýlishús. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðunum og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðunum.

  4. 4. 740 Stekkjargata 3 - Umsókn um stækkun lóðar

    Mál 2201137 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Víkings Pálmasonar, dagsett 23. janúar 2022, þar sem sótt er um stækkun lóðar hans við Stekkjargötu 3 á Norðfirði. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs, dagsett 3. febrúar 2022, um stöðu skipulagsmála við Stekkjargötu 3 og 5. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, stækkun lóðarinnar í samræmi við minnisblað og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.

  5. 5. 740 Nesgata 36 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2201184 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Jónu T. Ingimarsdóttur, dagsett 31. janúar 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hennar að Nesgötu 36 á Norðfirði ásamt stækkun lóðarinnar til vesturs. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt stækkun lóðar fyrir sitt leyti. Jafnframt samþykkir nefndin að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður að fengnu samþykki bæjarráðs á stækkun lóðar. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.

  6. 6. Starfshópur leikskólar 2021

    Mál 2111127 Allur ferill málsins

    Umræða í framhaldi af vinnu starfshóps sem bæjarráð skipaði 22. nóvember sl. um málefni leikskólanna í Fjarðabyggð. Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um aðgerðir í starfsmannamálum leikskólanna. Fræðslunefnd tók undir tillögur í minnisblaði á fundi 9.febrúar. Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði og vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn. Bæjarráð vísar málinu jafnframt til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun.

  7. 7. Forkaupsréttur að Álfi SH414 nr. 2830

    Mál 2202104 Allur ferill málsins

    Bjargfugl ehf., kt. 520202-2230, til heimilis í Reykjavík, hefur gert kauptilboð í bátinn Álf SH-414, skr.nr. 2830. Seljandi bátsins er Háaöxl ehf., kt. 580517-0130, til heimilis á Fáskrúðsfirði. Kaupverðið er greitt með peningum við kaupsamning.

    Réttindi til veiða á grásleppu fylgja skipi en að öðru leyti fylgja engar aflaheimildir hverju nafni sem þær nefnast. Skipið og grásleppuleyfið er jafnframt selt á aflareynslu. Óskað er eftir að Fjarðabyggð falli frá forkaupsrétti að skipinu Álfi SH-414, skr.nr. 2830. Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti að Álfi. Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.

  8. 8. Styrkur á móti fasteignagjöldum

    Mál 2202117 Allur ferill málsins

    Víkin fagra ehf. sækir um styrk til greiðslu fasteignaskatts vegna bílasafns í Breiðdal í samræmi við reglur Fjarðabyggðar um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts. Bæjarráð samþykkir að veita styrk.

  9. 9. Málefni Flugfélags Austurlands

    Mál 2201178 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá Flugfélagi Austurlands merkt trúnaðarmál. Bæjarstjóri fór yfir stöðu málsins. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn flugfélagsins í ljósi umræðu á fundinum.

  10. 10. Tillaga til þingsályktunar um endurskoðun á laga- og reglugerðaumhverfi sjókvíaeldi, 93. mál.

    Mál 2202099 Allur ferill málsins

    Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á laga- og reglugerðaumhverfi sjókvíaeldis, 93. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. febrúar nk. Vísað til atvinnu- og þróunarstjóra með beiðni um gerð umsagnar sem send verði atvinnuveganefnd.

  11. 11. 332. mál til umsagna um vernd og orkunýtingu landsvæða

    Mál 2202119 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 332. mál. Ef senda á umsögn þarf hún að hafa borist eigi síðar en 25. febrúar. Atvinnu- og þróunarstjóra, í samráði við bæjarstjóra, falið að senda umsögn.

  12. 12. Aðalfundur Lánasjóðs Sveitarfélaga ohf - 26.mars 2022

    Mál 2202116 Allur ferill málsins

    Kjörnefnd Lánasjóðs sveitarfélaga auglýsir eftir framboðum í stjórn Lánasjóðsins. Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 9.mars.

  13. 13. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2022

    Mál 2201106 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar sambandsins frá 4.febrúar lögð fram til kynningar.

  14. 14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 305

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. febrúar lögð fram til staðfestingar.

    1. 14.1 755 Stöðvargrund - Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging, spennavirki2112002
    2. 14.2 730 Öldugata 3 - Umsókn um byggingarheimild, sólskáli2112126
    3. 14.3 740 Strandgata 18 - Umsókn um lóð2109239
    4. 14.4 740 Stekkjargata 3 - Umsókn um stækkun lóðar2201137
    5. 14.5 740 Blómsturvellir 39 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2201084
    6. 14.6 740 Nesgata 36 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2201184
    7. 14.7 740 Strandgata 20a - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2201015
    8. 14.8 760 Selnes 15 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2201112
    9. 14.9 760 Selnes 20 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2201113
    10. 14.10 740-Umsókn um efnistöku í Norðfjarðarós2104015
    11. 14.11 Þjóðlendumál á Austfjörðum - kynning á kröfum ríkisins2202036
    12. 14.12 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20222202061
  15. 15. Fræðslunefnd - 107

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 9. febrúar lögð fram til staðfestingar.

    1. 15.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-20222110117
    2. 15.2 Sveigjanlegur vistunartími í leikskólum Fjarðabyggðar2202056
    3. 15.3 Starfshópur leikskólar 20212111127
    4. 15.4 Áskorun vegna sundlaugar Reyðarfjarðar2112045
  16. 16. Félagsmálanefnd - 150

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagmálanefndar frá 8. febrúar lögð fram til staðfestingar.

    1. 16.1 Stefnumótun og þarfagreining í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð.2202015
    2. 16.2 Tillaga til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál 20. mál2202065
    3. 16.3 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20212005022
    4. 16.4 Öldungaráð - 42112006F
    5. 16.5 Öldungaráð - 52201011F
  17. 17. Öldungaráð - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs frá 14. desember lögð fram til staðfestingar.

    1. 17.1 Viðhaldsmál fasteigna í útleigu hjá félögum eldriborgara2112083
    2. 17.2 Hafnargjöld fyrir eldri borgara2006145
    3. 17.3 Erindisbréf öldungaráðs1805131
    4. 17.4 Umsóknarstyrkur að efla félagsstarf fullorðinna 2021 vegna COVID-192104009
  18. 18. Öldungaráð - 5

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs frá 24. janúar lögð fram til staðfestingar.

    1. 18.1 Umsóknarstyrkur að efla félagsstarf fullorðinna 2021 vegna COVID-192104009
    2. 18.2 Viðhaldsmál fasteigna í útleigu hjá félögum eldriborgara2112083
  19. 19. Barnaverndarnefnd 2022

    Mál 2202112 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnarnverndarnefndar frá 10.febrúar lögð fram til staðfestingar.