Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2022

Sveigjanlegur vistunartími í leikskólum Fjarðabyggðar

Mál 2202056 Fyrst á dagskrá 9. febrúar 2022, síðast 17. febrúar 2022. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2022

    Fræðslunefnd, fundur 107 liður 2

    Fyrir liggur minnisblað um sveigjanlegan vistunartíma leikskólabarna í Fjarðabyggð. Með sveigjanlegum vistunartíma gefst foreldrum færi á að hafa vistun breytilega, þ.e. að hafa einn eða fleiri daga vikunnar eða mánaðarins styttri eða lengri. Skráningarkerfið Karellen, sem leikskólar Fjarðabyggðar nýta, býður nú upp á möguleika á að skrá viðveru og reikna út vistunargjöld á auðveldan hátt sem auðveldar sveitarfélögum að bjóða uppá sveigjanlegan vistunartíma. Í minnisblaðinu kemur fram að eftir sem áður sé mikilvægt að taka tillit til skipulags hópastarfs skólanna sem er á milli kl. 9 og 12 sem og hvíldartíma nemenda og mönnunar skólanna.

    Lesa alla bókunina (124 orð til viðbótar)

    Með því að taka upp sveigjanlegan vistunartíma fyrir leikskólabörn er m.a. verið að koma til móts við foreldra sem kjósa að stytta vistunartíma barna þegar þau eru með styttri vinnudag vegna styttingu vinnutímans ellegar kjósa að hafa börnin heima ákveðna daga eða dagsparta í mánuði. Að sama skapi getur sveigjanlegur vistunartími minnkað álag í leikskólum og auðveldað leikskólastjórnendum að skipuleggja styttingu vinnutíma starfsfólks og undirbúningstíma. Fjárhagsleg áhrif þess að bjóða upp á sveigjanlegan vistunartíma eru talin óveruleg. Í minnisblaðinu er lagt til að boðið verði upp á sveigjanlegan vistunartíma fyrir leikskólabörn í Fjarðabyggð. Fræðslunefnd samþykkir að boðið verði upp á sveigjanlegan vistunartíma frá og með 1. mars 2022 og felur fræðslustjóra í samráði við skólastjórnendur að útfæra og kynna fyrir foreldrum/forráðamönnum leikskólabarna í Fjarðabyggð.

  2. Bæjarráð, fundur 743 liður 15.2

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 107“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 327 liður 4.2

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 107“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is