Félagslegt leiguhúsnæði
Mál 2009012 Fyrst á dagskrá 16. nóvember 2021, síðast 2. desember 2021. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 2. desember 2021, frá 0:02:48
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdirVelferð
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2021
Félagsmálanefnd, fundur 148 liður 3
Félagsmálanefnd hefur farið yfir mat starfsmanns á þörf fyrir félagslegt leiguhúsnæði. Nefndin ítrekar mikilvægi þess að sveitarfélagið hafi aðgang að íbúðum til útleigu á félagslegum forsendum og tekur undir það mat að ekki sé skilyrði að íbúðirnar séu í eigu sveitarfélagsins ef aðgangur að íbúðum er tryggður. Málinu er vísað til bæjarráðs til frekari umfjöllunar.
-
Bæjarráð, fundur 734 liður 1
Þann 16. nóvember 2021 vísaði félagsmálanefnd umræðu um félagslegt leiguhúsnæði til frekari umfjöllunar bæjarráðs. Félagsmálanefnd hefur farið yfir mat á þörf fyrir félagslegt leiguhúsnæði. Nefndin ítrekar mikilvægi þess að sveitarfélagið hafi aðgang að íbúðum til útleigu á félagslegum forsendum og tekur undir það mat að ekki sé skilyrði að íbúðirnar séu í eigu sveitarfélagsins ef aðgangur að íbúðum er tryggður. Málinu er vísað til bæjarráðs til frekari umfjöllunar. Bæjarráð samþykkir í ljósi niðurstöðu félagsmálanefndar að fela fjármálastjóra og bæjarstjóra að hefja viðræður við Leigufélagið Bríet um kaup á íbúðum í eigu sveitarfélagsins, með sama hætti og með sömu forsendum og voru í fyrri samningum sem gerðir hafa verið við Bríet.
-
Bæjarráð, fundur 734 liður 12.3
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 148“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 323 liður 1.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 734“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Opinber fundargerð á fjardabyggd.is
Upptaka bæjarstjórnarfundar 323. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:02:48 vísað frá félagsmálanefnd til umræðu í bæjarráði það eru sem sagt uppi pælingar um það að við höldum áfram að grinka á eignasafni bæjarins við erum ekkert átakanlega vel til þess fallin að vera að reka leiguhúsnæði með tilheyrandi viðeldskostnaði og flækjustigi þannig að það eru uppi hugmyndir um það ath að hérna leikafélagi bríet kaupi
- 0:03:16 þetta kaupi fleiri íbúðir á okkur og hérna að við losum okkur svolítið úr því að eiga þetta húsnæði og félagsmálanefndirinnar verður sér enga sérstaka meinbauði á því svo lengi sem við höfum aðgang að húsnæðni þegar þörf kemur upp fyrir slíkt það er búið að meta þörfina nokkuð vel og hérna það á að vera hægt að láta þetta ganga upp og ég held að þetta sé gott mál og auðvitað svona í dag
-
Bæjarstjórn, fundur 323 liður 4.3
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 148“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.