Bæjarráð, fundur 726
20. september 2021, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 319 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Rúnar Már Gunnarsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 20. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Útboð vátrygginga Fjarðabyggðar
Mál 2107049 Allur ferill málsins
Kynntar niðurstöður úr útboði trygginga Fjarðabyggðar en yfirferð tilboðsgagna stendur yfir og að því loknu verða lokaniðurstöður kynntar.
-
2. Málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar 2020 - 2021
Mál 2004118 Allur ferill málsins
Lagður fram til staðfestingar viðaukasamningur við sóknaráætlun Austurlands um lagfæringar á húsnæði Sköpunarmiðstöðvar.
Bæjarráð staðfestir samninginn og felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að leggja fyrir bæjarráð fjármögnun á hlut Fjarðabyggðar.
-
3. Íbúafundur á Reyðarfirði um grænan orkugarð
Mál 2109154 Allur ferill málsins
Kynnt drög að dagskrá vegna íbúafundar á Reyðarfirði um grænan orkugarð, sem haldinn verður í samstarfi við Landsvirkjun. Stefnt er á að halda fund þriðjudag 5. október kl. 20:00
-
4. Samningur um rekstur Norðfjarðarflugvallar
Mál 2001185 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðæðum sem hann hefur átt við flugmálayfirvöld um uppsetningu aðflugs- og ljósabúnaðs Norðarfjarðarflugvallar en Isavia er að vinna verðkönnun. Stefnt er að því að uppsetningu búnaðar verði lokið vorið 2022.
-
5. Trjákurl til húshitunar
Mál 1905004 Allur ferill málsins
Kynntar hugmyndir Tandrabergs ehf. - Tandra Energy, um uppsetningu á orkuframleiðslu sem tengist fjarvarmaveitu Fjarðabyggðar á Norðfirði. Verkefnið er tilraunaverkefni til eins árs.
Bæjarráð samþykkir að útfærður verði samningur um verkefnið og felur fjármálastjóra að vinna hann og leggja fyrir bæjarráð. Erindi er jafnframt vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ásamt því að nefndin finni veitustöðinni stað.
-
6. Upplýsingatækni - endurnýjun samnings um H3
Mál 2109057 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um endurnýjun á þjónustusamningi vegna Mannauðslausna Advania, launakerfisins H3.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
7. Málefni brothættra byggða
Mál 2103191 Allur ferill málsins
Kynnt staða umsóknar til brothættra byggða og val á fulltrúum í verkefnahóp. Lagt verður til við Byggðastofnun að skipaðir verði fulltrúar Fjarðabyggðar og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi fyrir komandi íbúaþing á Stöðvarfirði. Síðan verði fulltrúar íbúa í verkefnahóp skipaðir á íbúaþingi.
Vísað til áframhaldandi vinnu bæjarstjóra og atvinnu- og þróunarstjóra.
-
8. Sveitarfélögin og heimsmarkmiðin
Mál 1901204 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um styrk frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til stuðnings við innleiðingu heimsmarkmiða sveitarfélaga á grundvelli verkfærakistu um heimsmarkmiðin.
Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs, bæjarstjóra falið að vinna að málinu.
-
9. Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2021
Mál 2109168 Allur ferill málsins
Fjármálaráðstefna sveitarfélaganna verður haldin 7.- 8.október nk. á Hilton Reykjavík Nordica.
Fulltrúar Fjarðabyggðar verður bæjarráð ásamt bæjarstjóra og fjármálastjóra.
-
10. Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2021
Mál 2109169 Allur ferill málsins
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 6. október nk. á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hefst kl. 16.00.
Bæjarstjóri mætir fyrir hönd Fjarðabyggðar.