Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 265

11. ágúst 2021, kl. 16:30 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Heimir Snær Gylfason, varamaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varamaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 721 liður 12

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 11. ágúst lögð fram til samþykktar.

    Bæjarráð samþykkir í umboði bæjarstjórnar fundargerð hafnarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Samskip Skaftafell

    Mál 2106070 Allur ferill málsins

    Erindi frá Samskip dags. 10. júní 2021 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Roman Lutsenko, skipstjóra á MS Samskip Skaftafell. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðna undanþágu.

  2. 2. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Tukuma Arctica

    Mál 2108013 Allur ferill málsins

    Erindi frá Royal Arctic Line dags. 29. júlí 2021 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Jens Peter Rosing Berthelsen, skipstjóra á Tukuma Arctica. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðna undanþágu.

  3. 3. 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn

    Mál 2006135 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar álit Skipulagsstofnunar vegna umsóknar Fiskeldis Austfjarða hf. um 7.000 tonna framleiðslu á laxi í Stöðvarfirði.

  4. 4. Ósk um umsögn hafnaryfirvalda

    Mál 2108025 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Fiskistofu um umsögn hafnaryfirvalda vegna umsóknar Fiskmarkaðs Austurlands í Neskaupstað um endurvigtunarleyfi. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að ganga frá umsögn.

  5. 5. Fóðurprammi sekkur við Gripalda

    Mál 2101071 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar. Laxar Fiskeldi ehf. hafa tilkynnt að björgun fóðurprammans Munins af hafsbotni á Gripalda hefur verið frestað til haustsins 2022. Umhverfisstofnun hefur samþykkt frestunina. Vegna umhverfis- og öryggissjónarmiða hvetur hafnarstjórn til að haft sé gott eftirlit með ástandi fóðurprammans þangað til honum hefur verið komið upp á yfirborðið.

  6. 6. Drangur sekkur í Stöðvarfjarðarhöfn

    Mál 2010176 Allur ferill málsins

    Gengið hefur verið frá sölu Drangs ÁR-307 sem sökk í Stöðvarfjarðarhöfn í lok október 2020 og var báturinn dreginn úr höfn fimmtudaginn 5.ágúst síðastliðinn.

  7. 7. Grjótvarnir í Fjarðabyggð

    Mál 2103194 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar niðurstaða úr útboði Vegagerðarinnar vegna sjóvarna á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði. Þ.S. Verktakar ehf. voru lægstbjóðendur.

  8. 8. Þróun hafnarsvæða

    Mál 2108027 Allur ferill málsins

    Þróun hafnarsvæða Fjarðabyggðarhafna. Trúnaðarmál.

  9. 9. Endurbygging/endurnýjun stálþilja vegna tæringar

    Mál 1710016 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn ræddi ástand eldri stálþilja á höfnunum. Hafnarstjórn samþykkir að fara í hönnun á endurnýjun stálþils Löndunarbryggju við fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að hefja undirbúning að hönnun í samráði við hafnarstjóra.

  10. 10. Þriggja fasa rafmagn í Mjóafjörð

    Mál 2108028 Allur ferill málsins

    Lagður fram tölvupóstur frá Rarik þar sem tilkynnt er um fyrirhugaða lagningu þriggja fasa rafmagns í Mjóafjörð fyrir veturinn og kannaður er áhugi orkukaupenda í þorpinu á að taka við þriggja fasa rafmagni. Hafnarstjórn samþykkir að taka þriggja fasa rafmagn á bryggjuna í Mjóafirði. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs í samráði við hafnarstjóra að vera í samskiptum við Rarik vegna málsins.

  11. 11. Beiðni um styrk vegna hátíðahalda á sjómannadaginn 2021

    Mál 2106073 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni frá Sjómannadagsráði Neskaupstaðar um styrk vegna hátíðahalda í kringum sjómannadaginn í Neskaupstað 2021. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja hátíðahöld vegna sjómannadags líkt og verið hefur. Verkefnastjóra hafna falið að vera í sambandi við forsvarsmenn hátíðahalda.

  12. 12. Skýrsla um rafvæðingu hafna á Íslandi

    Mál 2106072 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar skýrsla sem Verkís vann fyrir Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið um landtengingar í höfnum landsins. Hafnarstjórn vísar skýrslunni til sviðsstjóra framkvæmdasviðs og verkefnastjóra hafna til skoðunar í tengslum við rafvæðingu hafna í Fjarðabyggð.

  13. 13. 740 Egilsbraut 6 - Umsókn um stækkun lóðar

    Mál 2108032 Allur ferill málsins

    Óskað er eftir afstöðu hafnarstjórnar til beiðni um stækkun lóðar þar sem hún nær til svæðis hafnarinnar. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti stækkun lóðar eins og fram kemur í minnisblaði verkefnastjóra. Sérstaklega þarf að gæta að samkomulagi um ljósamöstur í eigu Fjarðabyggðarhafna. Þá er verkefnastjóra hafna og hafnarstjóra að ganga frá byggingaréttargjaldi í samstarfi við fjármálastjóra.