Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 721

16. ágúst 2021, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 316 liður 6

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umræðu.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð bæjarráðs frá 16. ágúst lögð fram til kynningar.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2021 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2104079 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar fyrir janúar - júní og skatttekjur og launakostnað fyrir janúar - júlí 2021.

  2. 2. Bréf til bæjarráðs frá Vinum Valhallar

    Mál 2106069 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir að nýju í bæjarráði erindi frá Vinum Valhallar um frekari stuðning við núverandi hlutverk félagsheimilisins Valhallar á Eskifirði.

    Bæjarstjóri fundaði með Vinum Valhallar um málefni Valhallar og kynnti efni hans.

    Bæjarstjóra falið að leggja fyrir uppfærð drög að samningi við Vini Valhallar.

  3. 3. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð - Verðkönnun 2021

    Mál 2107034 Allur ferill málsins

    Lagt fyrir minnisblað upplýsingafulltrúa með niðurstöðum úr verðfyrirspurn vegna Almenningssamganga í Fjarðabyggð 2021 - 2022.

    Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Ís-Travel í akstur á leið 1, Neskaupstaður - Fáskrúðsfjörður - Neskaupstaður en hafnar tilboði í leið 2, Breiðdalur - Fáskrúðsfjörður - Breiðdalur. Bæjarstjóra falið að taka upp viðræður um þá leið. Bæjarstjóra falið að undirrita samning um akstur á leið 1. Kostnaði er vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2021.

  4. 4. Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf 2020

    Mál 2108043 Allur ferill málsins

    Framlagður ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. fyrir árið 2020.

    Bæjarráð samþykkir ársreikning fyrir sitt leyti.

  5. 5. Aðalfundur í stjórn Breiðdalsseturs 2021

    Mál 2108052 Allur ferill málsins

    Óskað eftir tilnefningu Fjarðabyggðará aðal- og varamanni í stjórn Breiðdalsseturs á aðalfundi 21. 8. nk.

    Bæjarráð samþykkir að Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri verði aðalmaður í stjórn og Hákon Hansson varamaður. Bæjarstjóri fer með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  6. 6. Gjaldskrá leikskóla 2021

    Mál 2009122 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að breytingu á gjaldskrá þar sem breyting verður á gjaldi fyrir máltíðir barna til samræmis við starfs- og fjárhagsáætlun fræðslumála fyrir árið 2021.

    Bæjarráð samþykkir með 2 atkvæðum að gjaldskráin taki breytingum frá og með 1. september 2021. Ragnar Sigurðsson greiðir atkvæði á móti.

  7. 7. Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 2021

    Mál 2009119 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga um að fella niður gjaldskrá þar sem breyting verður á gjaldi fyrir máltíðir barna til samræmis við starfs- og fjárhagsáætlun fræðslumála fyrir árið 2021.

    Bæjarráð samþykkir með 2 atkvæðum að gjaldskráin falli niður frá og með 1. september 2021. Ragnar Sigurðsson greiðir atkvæði á móti.

  8. 8. 730 Búðarmelur 9a-b - Umsókn um lóð

    Mál 2108014 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd lóðarumsókn Kolbeins Guðnasonar, dagsett 3. ágúst 2021, þar sem sótt er um lóðina við Búðarmel 9a-b á Reyðarfirði undir parhús.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  9. 9. 730 Búðarmelur 7a-b - Umsókn um lóð

    Mál 2108015 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd lóðarumsókn Kolbeins Guðnasonar, dagsett 3. ágúst 2021, þar sem sótt er um lóðina við Búðarmel 7a-b á Reyðarfirði undir parhús.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  10. 10. 740 Egilsbraut 6 - Umsókn um stækkun lóðar

    Mál 2108032 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd umsókn Eimskip Íslands ehf, dagsett 9. ágúst 2021, þar sem óskað er eftir stækkun lóðar fyrirtækisins að Egilsbraut 6 á Norðfirði til samræmis við lóð nyrðri hluta hússins eða um 800 m2. Samþykki hafnarstjórnar vegna stækkunar lóðarinnar liggur fyrir.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  11. 11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 293

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 13. ágúst s.l. lögð fram til samþykktar.

    Bæjarráð samþykkir í umboði bæjarstjórnar fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

    1. 11.1 735 Lambeyrarabraut 6 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2107057
    2. 11.2 735 Hlíðarendavegur 35 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2108008
    3. 11.3 740 Þórhólsgata 1a - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2107065
    4. 11.4 750 Skólavegur 92 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2107002
    5. 11.5 730 Búðarmelur 9a-b - Umsókn um lóð2108014
    6. 11.6 730 Búðarmelur 7a-b - Umsókn um lóð2108015
    7. 11.7 730 Litlagerði 2, 4 og 6 - Umsókn um lóð2107095
    8. 11.8 735 Miðdalur 17-19 - Umsókn um lóð2107097
    9. 11.9 730 - Litlagerði 7-9 - Umsókn um byggingarleyfi, parhús2107072
    10. 11.10 740 - Naustavegur 19 - Byggingarleyfi, salernishús2108017
    11. 11.11 740 - Blómsturvellir 41 - Umsókn byggingarleyfi, einbýlishús2107090
    12. 11.12 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn2006135
    13. 11.13 740 Egilsbraut 6 - Umsókn um stækkun lóðar2108032
    14. 11.14 Deiliskipulag, Eskifjörður-Útkaupstaður2009211
  12. 12. Hafnarstjórn - 265

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 11. ágúst lögð fram til samþykktar.

    Bæjarráð samþykkir í umboði bæjarstjórnar fundargerð hafnarstjórnar.

    1. 12.1 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Samskip Skaftafell2106070
    2. 12.2 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Tukuma Arctica2108013
    3. 12.3 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn2006135
    4. 12.4 Ósk um umsögn hafnaryfirvalda2108025
    5. 12.5 Fóðurprammi sekkur við Gripalda2101071
    6. 12.6 Drangur sekkur í Stöðvarfjarðarhöfn2010176
    7. 12.7 Grjótvarnir í Fjarðabyggð2103194
    8. 12.9 Endurbygging/endurnýjun stálþilja vegna tæringar1710016
    9. 12.10 Þriggja fasa rafmagn í Mjóafjörð2108028
    10. 12.11 Beiðni um styrk vegna hátíðahalda á sjómannadaginn 20212106073
    11. 12.12 Skýrsla um rafvæðingu hafna á Íslandi2106072
    12. 12.13 740 Egilsbraut 6 - Umsókn um stækkun lóðar2108032