Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 720

9. ágúst 2021, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 316 liður 5

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umræðu.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð bæjarráðs frá 9. ágúst lögð fram til kynningar.

Dagskrá

  1. 1. Útboð vátrygginga Fjarðabyggðar

    Mál 2107049 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að útboðsgögnum vegna útboðs vátrygginga Fjarðabyggðar og stofnana. Bæjarráð samþykkir drögin og felur fjármálastjóra og bæjarritara að hefja útboðsferil.

  2. 2. Reglur um fjarvistir 2021

    Mál 2106138 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til samþykktar endurskoðaðar reglur um fjarvistir. Bæjarráð samþykkir reglurnar í umboði bæjarstjórnar.

  3. 3. Auglýsing ákvörðunar samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga

    Mál 2003111 Allur ferill málsins

    Lögð fram til upplýsinga ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjóran og auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélaga.

  4. 4. Aðild að Jafnvægisvog FKA

    Mál 2107098 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað mannauðsstjóra um aðild Fjarðabyggðar að jafnvægisvog FKA (Félags kvenna i atvinnurekstri). Bæjarráð samþykkir að sveitarfélagið gerist aðili að jafnvægisvog FKA og felur mannauðsstjóra að hefja það ferli.

  5. 5. Áhættumat í rekstri upplýsingatæknikerfa 2018

    Mál 1808035 Allur ferill málsins

    Framlagt sem hluti af áhættumati í rekstri upplýsingatæknikerfa sem úrbótaverkefni sem komu fram við endurskoðun kerfisins. Úrbætur hafa verið skilgreindar sem unnið verður að haustið 2021. Skjalið er lagt fram sem trúnaðarmál. Í umboði bæjarstjórnar samþykkir bæjarráð framlögð atriði, sem hluta af áhættumati í rekstri upplýsingatæknikerfa.

  6. 6. Upplýsingaöryggismál - öryggiskröfur og öryggisráðstafanir ásamt hlítingarlista

    Mál 1803098 Allur ferill málsins

    Framlagðar endurskoðaðar öryggiskröfur og öryggisráðstafanir vegna reksturs upplýsingakerfa Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir öryggiskröfur og öryggisráðstafanir vegna reksturs upplýsingakerfa Fjarðabyggðar í umboði bæjarstjórnar.

  7. 7. Lúpína í Búðarárgili

    Mál 2108031 Allur ferill málsins

    Erindi Einars Þorvarðarsonar er varðar Búðarárfosshvamminn á Reyðarfirði og ágengni lúpínu við Búðarárgilið. Bæjarráð tekur undir með bréfritara um ágengni lúpínunnar víða í sveitarfélaginu og vísar málinu til vinnslu umhverfisstjóra og eigna-, skipulags-, og umhverfisnefndar.

  8. 8. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 292

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 22.júlí, lögð fram og staðfest í umboði bæjarstjórnar.

    1. 8.1 740 Hafnarbraut 34-48 - Umsókn um lóð - Fjölbýli með 6 - 9 íbúðum á 2-3 hæðum2106157
    2. 8.2 740 Blómsturvellir 29-31 - Umsókn um lóð - Parhús eða þriggja íbúða raðhús2106156
    3. 8.3 730 Hjallaleira 17 og 19 - Umsókn um lóð2106129
    4. 8.4 Þiljuvellir 13 - Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging og breytt notkun2106095
    5. 8.5 750 Hafnargata 39 - Umsókn um byggingarleyfi, þjónustumiðstöð2103148
    6. 8.6 750 Hafnargata 32 - Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging2106018
    7. 8.7 Stekkholt 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2107056
    8. 8.8 Grjótvarnir í Fjarðabyggð2103194
    9. 8.9 755 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna grjótnáms úr malarnámu í landi Hvalness í Stöðvarfirði2107069
    10. 8.10 750 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna grjótnáms úr námu í landi Kappeyrar í Fáskrúðsfirði2107070
    11. 8.11 760 - Beiðni um framkvæmdaleyfi, lóð undir tjaldsvæði2106182
    12. 8.12 Krafa um skaðabætur vegna fasteignanna að Mánagötu 3 og 7 Reyðarfirði2106098
    13. 8.13 Kæra vegna afgreiðslu eigna-, skipulags og umhverfisnefndar2106207
    14. 8.14 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn2006135
    15. 8.15 Þynningarsvæði2106144
    16. 8.16 Fyrirspurn vegna Strandgötu 58, Eskifirði. Svanssjóhús.2107066