Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2021

740 Hafnarbraut 34-48 - Umsókn um lóð - Fjölbýli með 6 - 9 íbúðum á 2-3 hæðum

Mál 2106157 Fyrst á dagskrá 22. júlí 2021, síðast 9. ágúst 2021. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: HafnirLóðir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2021

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 292 liður 1

    Lögð fram lóðarumsókn Önnu Margrétar Sigurðardóttur, dagsett 23. júní 2021, þar sem sótt er um lóð undir 6-9 íbúða fjölbýlishús á 2-3 hæðum á svæðinu milli Hafnarbrautar 34 og 48 á Norðfirði. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssvið að fara yfir málið og leggja fyrir nefndina að nýju.

  2. Bæjarráð, fundur 720 liður 8.1

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 292“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is