NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 293
13. ágúst 2021, kl. 14:00 til 14:45, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 721 liður 11
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 13. ágúst s.l. lögð fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir í umboði bæjarstjórnar fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Dagskrá
-
1. 735 Lambeyrarabraut 6 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2107057 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Vilborgar Ölversdóttur, dagsett 16. júlí 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hennar að Lambeyrarbraut 6 á Eskifirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
2. 735 Hlíðarendavegur 35 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2108008 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Bjarna Freys Guðmundssonar, dagsett 3. ágúst 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Hlíðarendavegi 10 á Eskifirði. Afmörkun lóðar er í samræmi við deiliskipulag.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
3. 740 Þórhólsgata 1a - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2107065 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Jerzy Stanislaw Jagielski, dagsett 19. júlí 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Þórhólsgötu 1a á Norðfirði. Afmörkun lóðar er í samræmi við deiliskipulag.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
4. 750 Skólavegur 92 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2107002 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Fasteignafélagsins Orku ehf, dagsett 19. júlí 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar einkahlutafélagsins að Skólavegi 92 á Fáskrúðsfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
5. 730 Búðarmelur 9a-b - Umsókn um lóð
Mál 2108014 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Kolbeins Guðnasonar, dagsett 3. ágúst 2021, þar sem sótt er um lóðina við Búðarmel 9a-b á Reyðarfirði undir parhús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
6. 730 Búðarmelur 7a-b - Umsókn um lóð
Mál 2108015 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Kolbeins Guðnasonar, dagsett 3. ágúst 2021, þar sem sótt er um lóðina við Búðarmel 7a-b á Reyðarfirði undir parhús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
7. 730 Litlagerði 2, 4 og 6 - Umsókn um lóð
Mál 2107095 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn AMC wave ehf, dagsett 27. júlí 2021, þar sem sótt er um lóðirnar við Litlagerði 2, 4 og 6 á Reyðarfirði undir 6 til 8 íbúða raðhús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu lóðarumsóknar. Nefndin samþykkir að gera óverulega breytingu á deiliskipulaginu Bakkagerði 1 svo gera megi ráð fyrir sameiningu lóðanna og byggingar raðhúss. Breyting deiliskipulags verði grenndarkynnt lóðarhafa Litlagerðis 7-9.
-
8. 735 Miðdalur 17-19 - Umsókn um lóð
Mál 2107097 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn AMC wave ehf, dagsett 27. júlí 2021, þar sem sótt er um lóðirnar við Miðdal 17-19 og Ystadal 6-8 á Eskifirði undir 9 íbúða raðhús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu lóðarumsóknar. Nefndin samþykkir að gera óverulega breytingu á deiliskipulaginu Dalur 2 svo gera megi ráð fyrir sameiningu lóðanna og byggingar raðhúss. Breyting deiliskipulags verði grenndarkynnt íbúum Árdals 1, 3, 5, 7, 9 og 11, Ystadals 4 og Miðdals 15.
-
9. 730 - Litlagerði 7-9 - Umsókn um byggingarleyfi, parhús
Mál 2107072 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Eyþórs Dan Sigurðssonar, dagsett 22. júlí 2021, þar sem sótt er um leyfi til byggja 360,4 m2 og 1.344,2 m3 parhús á lóð hans að Litlagerði 7-9 á Reyðarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.
-
10. 740 - Naustavegur 19 - Byggingarleyfi, salernishús
Mál 2108017 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar, dagsett 4. ágúst 2021, þar sem sótt er um leyfi til byggja 9,8 m2 og 29,2 m3 salernishús á lóð hafnarinnar við Naustaveg 19 við smábátahöfnina á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.
-
11. 740 - Blómsturvellir 41 - Umsókn byggingarleyfi, einbýlishús
Mál 2107090 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Ólafar Þorgeirsdóttur, dagsett 26. júlí 2021, þar sem sótt er um leyfi til byggja 232,9 m2 og 762,1 m3 einbýlishús á lóð hennar að Blómsturvöllum 41 á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að grenndarkynna umsóknina. Grenndarkynning nái til Blómsturvalla 36, 38, 39, 42, og 43.
-
12. 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn
Mál 2006135 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Matvælastofnunar, dagsett 5. ágúst 2021, um umsögn vegna umsóknar Fiskeldis Austfjarða ehf á 7.000 tonna eldi í sjókvíum í Stöðvarfirði í samræmi við 7. gr. laga nr. 71/2008 um fiskeldi. Matvælastofnun hefur til meðferðar umsókn um rekstrarleyfi frá Fiskeldi Austfjarða ehf. vegna 7.000 tonna hámarkslífmassa á ófrjóum laxi í sjókvíum í Stöðvarfirði. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir kynslóðaskiptu sjókvíeldi í Stöðvarfirði. Verði af leyfisútgáfu rúmast hámarkslífmassi leyfis innan bæði burðarþolsmats og áhættumats Hafrannsóknarstofnunar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur bæjarstjóra að gera umsögn Fjarðabyggðar.
-
13. 740 Egilsbraut 6 - Umsókn um stækkun lóðar
Mál 2108032 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Eimskip Íslands ehf, dagsett 9. ágúst 2021, þar sem óskað er eftir stækkun lóðar fyrirtækisins að Egilsbraut 6 á Norðfirði til samræmis við lóð nyrðri hluta hússins eða um 800 m2. Samþykki hafnarstjórnar vegna stækkunar lóðarinnar liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti stækkun lóðarinnar. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
-
14. Deiliskipulag, Eskifjörður-Útkaupstaður
Mál 2009211 Allur ferill málsins
Farið yfir vinnu deiliskipulagsgerðar. Beðið er hönnunar ofanflóðavarna í Grjóta og verður vinnu við deiliskipulagið haldið áfram þegar hún liggur fyrir.