Bæjarráð, fundur 722
23. ágúst 2021, kl. 09:00 til 09:30, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 317 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Pálína Margeirsdóttir og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 23.ágúst samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Reglur um áreitni og einelti á vinnustað - endurskoðun
Mál 2009040 Allur ferill málsins
Framlagðar endurskoðaðar reglur um viðbrögð við áreitni og einelti á vinnustöðum sveitarfélagsins. Reglurnar hafa verið uppfærðar og aðlagaðar.
Bæjarráð samþykkir uppfærslu á reglunum fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
2. Alþingiskosningar 2021
Mál 2012054 Allur ferill málsins
Samkvæmt 46.gr. samþykkta um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar, annast bæjarráð í umboði bæjarstjórnar, gerð kjörskrár, fjallar um athugasemdir við kjörskrár, gerir nauðsynlegar leiðréttingar og afgreiðir ágreiningsmál í samræmi við ákvæði laga um kosningar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að semja kjörskrá vegna væntanlegra Alþingiskosninga þann 25. september 2021. Jafnframt veitir bæjarráð bæjarstjóra, fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna Alþingiskosninga þann 25. september 2021. Bæjarstjóri getur ávallt vísað úrskurðum um ágreiningsmál til bæjarráðs.
-
3. Nýtt skipulag almannavarna
Mál 2105157 Allur ferill málsins
Framlögð skipting á kostnaði sveitarfélaganna við almannavarnir á Austurlandi.
Bæjarráð samþykkir kostnaðinn og óskar eftir að fá á fund bæjarráðs lögreglustjórann á Austurlandi.
-
4. Samningur um rekstur handverksmarkaðar á Stöðvarfirði
Mál 2108080 Allur ferill málsins
Fram lögð drög að nýjum samningi um rekstur handverkshúss og gestastofu í Salhúsmarkaðinum, Samkomuhúsi Stöðvarfjarðar fyrir árin 2022 og 2025.
Bæjarráð samþykkir samninginn í samræmi við umræðu á fundinum og felur bæjarstjóra frágang og undirritun hans.
-
5. 7.000 tonna framleiðsla á ófrjóum laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn
Mál 2108079 Allur ferill málsins
Framlögð drög að umsögn til Matvælastofnunar um 7.000 tonna laxeldi í Stöðvarfirði.
Bæjarráð samþykkir umsögnina og felur bæjarstjóra að veita hana.