Hafnarstjórn, fundur 264
8. júní 2021, kl. 17:00 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 714 liður 30
Fundargerð hafnarstjórnar frá 8.júní lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 315 liður 6
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 8.júní, staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022
Mál 2104136 Allur ferill málsins
Drög að starfs- og fjárhagsáætlun 2022 lögð fram að nýju. Hafnarstjórn samþykkir drögin og vísar þeim til fjárhagsáætlunargerðar 2022. Hafnarstjórn samþykkir einnig að fela sviðsstjóra framkvæmdasviðs að undirbúa útboð vegna verkefna ársins 2022 til að betri mynd fáist af framkvæmdum þess árs.
-
2. Umsókn um styrk vegna Støð í Stöð 2021
Mál 2105185 Allur ferill málsins
Lögð fyrir umsókn um styrk frá Skemmtifélagi Stöðvarfjarðar vegna bæjarhátíðarinnar Stød í Stöð. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja hátíðina samkvæmt beiðni að því gefnu að hátíðin fari fram.
-
3. Landtengingarkrani í Neskaupstað
Mál 2106036 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni frá Síldarvinnslunni um leyfi til uppsetningar landtengingarkrana á Löndunarbryggjunni í Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir beiðni Síldarvinnslunnar um uppsetningu landtengingarkrana.
-
4. Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Samskip Skaftafell
Mál 2106048 Allur ferill málsins
Erindi frá Samskip dags. 8. júní 2020 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Stenar Vadim, skipstjóra á MS Samskip Skaftafell. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðna undanþágu.
-
5. Stækkun löndunarhúss Eskju
Mál 2106055 Allur ferill málsins
Fyrirhuguð er stækkun löndunarhúss Eskju hf. á löndunarbryggjunni á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti fyrirhugaðar framkvæmdir að öllum tilskyldum leyfum uppfylltum og vísar málinu til Eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. Hafnarstjóra falið í samvinnu við sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að útfæra byggingaréttargjald vegna stækkunarinnar.
-
6. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2021
Mál 2101212 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 435.fundar Hafnasambands Íslands