Hafnarstjórn, fundur 263
27. maí 2021, kl. 16:30 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eva Dröfn Sævarsdóttir, varamaður
- Heimir Snær Gylfason, varamaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 712 liður 10
Fundargerð hafnarstjórnar frá 28. maí sl. lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 314 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 28. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022
Mál 2104136 Allur ferill málsins
Starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðarhafna 2022 rædd. Hafnarstjórn ræddi forsendur starfs- og fjárhagsáætlun 2022 og felur hafnarstjóra, verkefnastjóra hafna og sviðstjóra framkvæmdasviðs að vinna áfram að áætluninni og leggja fyrir að nýju á næsta fundi.
-
2. Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður
Mál 2012075 Allur ferill málsins
Farið yfir undirbúning vegna byggingar nýrrar þjónustumiðstöðvar á Fáskrúðsfirði. Mannvit heldur utan um verðkönnun vegna jarðvinnu og uppsteypu.
-
3. Erindi vegna áforma um innheimtu vörugjalds
Mál 2101157 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf sem sent var Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi sem svar við erindi þeirra vegna áforma um innheimtu vörugjalds. Hafnarstjórn vísar málinu til kynningar í Hafnasambandi Íslands.
-
4. Bréf vegna umskipunar olíu á hafi innan hafnarsvæða og óhafntengdrar þjónustu við fiskeldi
Mál 2105079 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar bréf sem send voru Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Samgöngu og sveitastjórnarráðuneytinu og Fjármála- og efnahagsráðuneytinu ásamt Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis vegna umskipunar olíu á hafi innan hafnarsvæða og óhafntengdar þjónustu við fiskeldi. Hafnarstjórn vísar málinu til kynningar í Hafnasambandi Íslands.
-
5. 640. mál - Atvinnuveganefnd Alþingis umsögn tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 640. mál
Mál 2105150 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar umsögn Fjarðabyggðar sem send var Atvinnuveganefnd Alþingis vegna tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 640.mál.
-
6. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2021
Mál 2101212 Allur ferill málsins
Fundargerð 434. fundar Hafnasambands Íslands lögð fram til kynningar
-
7. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2021
Mál 2103094 Allur ferill málsins
Lögð fram tilkynning Fiskmarkaðs Austurlands hf. um greiðslu arðs.
-
8. Ósk um styrk vegna kaupa á björgunarbáti
Mál 2105167 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf frá Björgunarsveitinni Geisla á Fáskrúðsfirði þar sem óskað er eftir styrk vegna kaupa á nýjum björgunarbáti. Hafnarstjórn samþykkir að veita Björgunarsveitinni Geisla styrk upp á 2 milljónir vegna kaupa á nýjum björgunarbáti.
-
9. Beiðni um styrk vegna Sjómannadagsins á Eskifirði 2021
Mál 2105168 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni um styrk frá Sjómannadagsráði Eskifjarðar til að standa straum af dagskrá Sjómannadagsins á Eskifirði 2021. Hafnarstjórn mun styrkja hátíðahöld vegna sjómannadags líkt og verið hefur. Verkefnastjóra hafna falið að vera í sambandi við forsvarsmenn hátíðahalda um framkvæmd þeirra og umfang í tengslum við gildandi sóttvarnareglur.