Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 262

4. maí 2021, kl. 16:00 til 17:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 711 liður 23

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 4.maí lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 313 liður 3

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. maí staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um hlið á smábátahöfn á Eskifirði

    Mál 2104114 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Laxa Fiskeldis um leyfi til að setja upp hlið á smábátahöfninni á Eskifirði. Hafnarstjórn horfir frekar til myndavélavöktunar á hafnarsvæðinu í heild sinni og eru þau mál í skoðun. Því er erindinu hafnað.

  2. 2. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu - Thorship

    Mál 2101007 Allur ferill málsins

    Þann 31.desember 2020 barst erindi frá Thor Shipping ehf. þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Andrey Gilevskiy, skipstjóra á MV Sif W. Erindið var tekið fyrir á 255.fundi hafnarstjórnar þar sem bókað var erindið yrði tekið fyrir að nýju þegar skipstjóri hefði náð að uppfylla skilyrði um lágmarksfjölda koma.

    Málið er því tekið fyrir að nýju þar sem skipstjórinn hefur náð lágmarksfjölda koma.

    Hafnarstjórn samþykkir að veita undanþáguna.

  3. 3. Nöfn á bryggjum

    Mál 2104165 Allur ferill málsins

    Lagður fram tölvupóstur frá Landhelgisgæslu Íslands. Vegna nýrrar útgáfu hafnarkorts 714 vantar nafn á nýja bryggju við netagerð Hampiðjunnar og staðfestingu annarra nafna á kortinu. Einnig vantar nafn á nýja bryggju sem framkvæmdir eru hafnar við á Eskifirði.

    Hafnarstjórn samþykkir að bryggja við netagerð Hampiðjunnar verði kölluð Netagerðarbryggja og eldri netagerðarbryggja fái heitið Gamla Netagerðarbryggja til innsetningar á sjókortum. Þá fái ný bryggja á Eskifirði nafnið Frystihúsbryggja.

  4. 4. Aðild Fjarðabyggðarhafna að Cruise Europe

    Mál 2101182 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað verkefnastjóra hafna vegna aðildar Fjarðabyggðarhafna að Cruise Europe. Hafnarstjórn samþykkir að segja upp aðild sinni að Cruise Europe að svo stöddu.

  5. 5. Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis uppsjávarfrystihúss

    Mál 2104152 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis uppsjávarfrystihúss Eskju.

  6. 6. Hafnafundur 2021

    Mál 2103061 Allur ferill málsins

    Hafnafundi 2021, sem halda átti í Hafnarfirði 20.maí næstkomandi, hefur verið frestað til 3.september.