Bæjarráð, fundur 724
6. september 2021, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 318 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Rúnar Már Gunnarsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 6. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022-2025
Mál 2104074 Allur ferill málsins
Lögð fram endanleg tillaga að úthlutun ramma fyrir fjárhagsáætlunargerð ársins 2022 ásamt minnisblaði fjármálastjóra um breytingar frá drögum að úthlutun.
Bæjarráð samþykkir framlagða fjárhagsramma áætunar 2022 og vísar þeim tl vinnu fjárhagsáætlunar hjá fastanefndum og sviðsstjórum.
-
2. Nýtt skipulag almannavarna í maí 2021
Mál 2105157 Allur ferill málsins
Fjallað um verkefni á sviði almannavarna í Fjarðabyggð og samstarf lögreglu og aveitarfélagsins. Vinna í vinnuhópum almannavarna á svæðinu er að fara af stað sem fjallar um verkefni almannavarna.
-
3. Flúormælingar í Reyðarfirði 2021
Mál 2109007 Allur ferill málsins
Farið yfir niðurstöður vöktunar en þær verða jafnframt kynntar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
4. Skóladagatöl 2021-2022
Mál 2012161 Allur ferill málsins
Farið yfir breytingar í leik- og grunnskólum á starfsmannahaldi og fjölda barna milli áranna 2021 og 2022.
-
5. Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöðvarfirði 2022
Mál 2108149 Allur ferill málsins
Árlegt erindi félags áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði þar sem þakkað er fyrir framlög liðinna ára og óskað eftir sambærilegu fjármagni á fjárhagsáætlun ársins 2022.
Bæjarráð tekur vel í erindið. Erindi vísað til menningar- og nýsköpunarnefndar til umfjöllunar í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2022.
-
6. Forkaupsréttur að Áka í Brekku
Mál 2103041 Allur ferill málsins
Óskað er eftir að Fjarðabyggð falli frá forkaupsrétti á bátnum Áka í Brekku. Eftir að Áki í Brekku (2660) var seldur í mars 2021 var skipt um nafn á bátnum. Báturinn sem var tekinn upp í í þeirri sölu fékk einnig nafnið Áki í Brekku (2790). Verið er að selja þann bát og kaupa annan sem mun fá þetta sama nafn og er með skráningarnúmerið 2672.
Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti á bátnum og vísar erindi til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
7. Heimsókn til Gavelines í september 2021
Mál 2106165 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf frá vinabænum Graveline vegna Íslandsdaga. Vegna faraldurs og sóttvarnarmála verða ekki heimsóknir milli bæjanna 2021. Stefnt á að halda uppá 30 ára vinabæjartengsl á árinu 2022.
-
8. Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2020
Mál 2109026 Allur ferill málsins
Lagður fram til undirritunar ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2020.
Bæjarráð samþykkir ársreikning ársins 2020 með undirritun sinni.
-
9. Ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar 2020
Mál 2109025 Allur ferill málsins
Lagður fram til áritunar ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir árið 2020.
æjarráð samþykkir ársreikning ársins 2020 með undirritun sinni.
-
10. Málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar 2020 - 2021
Mál 2004118 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir framkvæmdir við Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði.
Bæjarstjóra falið að vinna að málinu áfram með ráðuneyti og ljúka því á grundvelli umræðna á fundinum.
-
11. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2021
Mál 2102016 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar sambandsins nr. 900 lögð fram til kynningar.