730 Hagar - Umsókn um stöðuleyfi, vinnubúðir
Mál 2109060 Fyrst á dagskrá 6. september 2021, síðast 16. september 2021. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 295 liður 12
Lagt fram erindi Eiðs Ævarssonar fh. óstofnaðs félags þar sem óskað er eftir stöðuleyfi fyrir afgang af vinnubúðunum sem standa á Haga. Sótt er um að þær vinnubúðir sem eftir standa verði allar færðar saman á um hálfs hektara svæði þar sem þær verða gerðar klárar til flutnings. Reiknað er með að flutningi af svæðinu verði lokið 1. október 2022.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki fallist á að útgáfu stöðuleyfis til handa umsækjanda.
-
Bæjarráð, fundur 725 liður 8.12
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 295“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 318 liður 3.12
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 295“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.