NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 295
6. september 2021, kl. 16:00 til 18:10, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Kristjana Guðmundsdóttir, varamaður
- Sindri Már Smárason, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 725 liður 8
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 318 liður 3
Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 6. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Flúormælingar í Reyðarfirði 2021
Mál 2109007 Allur ferill málsins
Fulltrúar Alcoa Fjarðaáls koma á fund eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og skýra frá niðurstöðum flúormælinga fyrirtækisins og viðbrögðum við þeim.
-
2. Alcoa Foundation, umhverfisverkefni 2021
Mál 2104047 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, dagsett 27. ágúst 2021, er varðar samþykkta styrkumsókn Fjarðabyggðar í sjóð Alcoa Foundation vegna umhverfisverkefna.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir verkefnaáætlun í minnisblaði umhverfisstjóra og felur umhverfis- og skipulagssviði að vinna áfram með verkefnin.
-
3. Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing
Mál 2106148 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, dagsett 25. ágúst 2021, vegna innleiðingar umhverfis- og loftlagsstefnu Fjarðabyggðar 2020-2040. Í minnisblaði er farið yfir innleiðingu stefnunnar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd líst vel á framkomnar tillögur að innleiðingu stefnunnar. Nefndin frestar afgreiðslu til næsta fundar.
-
4. Fjárréttir í Fjarðabyggð
Mál 1808042 Allur ferill málsins
Lagt fram innra vinnuskjal umhverfisstjóra, dagsett 31. ágúst 2021, er varðar viðhald fjárrétta í Fjarðabyggð og utansveitarfé.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfis- og skipulagssviði ásamt bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
-
5. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
Mál 1810136 Allur ferill málsins
Kynntar breytingar á tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Fjarðabyggðar í framhaldi af athugunun Skipulagsstofnunar fyrir auglýsingu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur farið yfir breytingar á tillögunni eftir athugun Skipulagsstofnunar og staðfestir þær. Nefndin samþykkir jafnframt, fyrir sitt leyti, að gera ráð fyrir stækkun reits I-500 á Stöðvarfirði. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
6. 740 Þiljuvellir 21 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 2108054 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Vilborgar Stefánsdóttur, dagsett 13. ágúst 2021, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hennar að Þiljuvöllum 21 á Norðfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
7. 740 Kirkjubólseyri 14 - Umsókn um lóð, hesthús
Mál 2108121 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Margrétar Lindu Erlingsdóttur, dagsett 25. ágúst 2021, þar sem sótt er um lóð undir hesthús á Kirkjubólseyri 14 í Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
8. 740 Egilsbraut 21 - Umsókn um byggingarleyfi breyta skráningu húss
Mál 2108087 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Síldarvinnslunnar hf, dagsett 18. ágúst 2021, þar sem óskað er eftir að skráðri notkun húss fyrirtækisins að Egilsbraut 21 á Norðfirði verði breytt úr gistiheimili í starfsmannabústað.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytta notkun hússins.
-
9. 740 Mýrargata 10 - Umsókn um byggingarleyfi, breytt innra skipulag
Mál 2108091 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Ríkiseigna, dagsett 19. ágúst 2021, þar sem óskað er eftir að heimild til að breyta innra skipulagi í húsnæði Verkmenntaskóla Austurlands að Mýrargötu 10 á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.
-
10. Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð
Mál 1402076 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs, dagsett 3. september 2021, þar sem farið er yfir stöðu geymslusvæða fyrir gáma í sveitarfélaginu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að hluti lóðarinnar við Hjallaleiru 21 verði nýttur undir geymslu á gámum og lausafjármunum. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
-
11. Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Mál 2108124 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri kynnti málefni tengd viljayfirlýsingu Fjarðabyggðar, Landsvirkjunar og CIP um þróun græns orkugarðs í Reyðarfirði.
-
12. 730 Hagar - Umsókn um stöðuleyfi, vinnubúðir
Mál 2109060 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi Eiðs Ævarssonar fh. óstofnaðs félags þar sem óskað er eftir stöðuleyfi fyrir afgang af vinnubúðunum sem standa á Haga. Sótt er um að þær vinnubúðir sem eftir standa verði allar færðar saman á um hálfs hektara svæði þar sem þær verða gerðar klárar til flutnings. Reiknað er með að flutningi af svæðinu verði lokið 1. október 2022.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki fallist á að útgáfu stöðuleyfis til handa umsækjanda.
-
13. Umsókn um framkvæmdaleyfi í Stuðlaá - rofavörn við jarðstreng Stuðlalínu 1
Mál 2109055 Allur ferill málsins
Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Landsnets þar sem óskað er eftir heimild til að grjótverja lagnaleið Stuðlalínu 1 í árfarvegi Stuðlaár í Reyðarfirði.
Eigan-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.