Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 102

29. september 2021, kl. 16:30 til 17:45, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Lísa Lotta Björnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 728 liður 9

    Fundargerð fræðslunefndar frá 29. september lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 319 liður 7

    Fundargerð fræðslunefndar frá 29. september tekin á dagskrá með afbrigðum.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 29. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing

    Mál 2106148 Allur ferill málsins

    Minnisblaði umhverfisstjóra vegna innleiðingar umhverfis- og loftlagsstefnu Fjarðabyggðar 2020-2040 er vísað frá Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til fræðslunefndar með ósk um að nefndin tilnefni aðila í starfshóp um innleiðingu stefnunnar. Fræðslunefnd fagnar erindinu og tilnefnir fræðslustjóra í starfshópinn.

  2. 2. Gjaldskrá tónlistarskóla 2022

    Mál 2109075 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá tónlistarskóla 2022 lögð fram til umræðu. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

  3. 3. Gjaldskrá skóladagheimila 2022

    Mál 2109079 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá frístundar/skóladagheimila 2022 lögð fram til umræðu. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

  4. 4. Gjaldskrá leikskóla 2022

    Mál 2109081 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá leikskóla 2022 lögð fram til umræðu. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

  5. 5. Gjaldskrá grunnskóla 2022

    Mál 2109086 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá grunnskóla 2022 lögð fram til umræðu. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

  6. 6. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2022

    Mál 2104131 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri fór yfir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar í fræðslumálum fyrir árið 2022. Farið var yfir niðurstöðu úr vinnu við gerð launaáætlunar sem unnin var af fræðslustjóra og skólastjórnendum. Önnur vinna við fjárhagsáætlun er langt komin og niðurstöður verða kynntar á næsta fundi nefndarinnar, ásamt drögum af starfsáætlun í fræðslumálum. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.