Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 99

9. júní 2021, kl. 16:30 til 18:20, Stöðvarfirði. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Þorvarður Sigurbjörnsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 714 liður 32

    Fundargerð fræðslunefndar frá 9. júní lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 315 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 7.júní, staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Heimsókn í skóla Fjarðabyggðar

    Mál 2005171 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd heimsótti skólastjóra Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla. Byrjað var á því að heimsækja nýju leikskóladeildina í Breiðdal og síðan gengið um annað húsnæði skólans. Þá var farið á Stöðvarfjörð og húsnæði og aðstaða skoðuð. Skólastjóri lýsti starfsemi BS skóla og helstu breytingum sem orðið hafa síðasta ár en nemendum hefur fjölgað um 35% frá 2020 til 2021. Fræðslunefnd þakkar skólastjóra fyrir góðar móttökur og óskar honum farældar í hans mikilvægu störfum.

  2. 2. Yfirfærsla á starfsemi Skólaskrifstofu Austurlands

    Mál 2104156 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri greindi frá gangi mála í yfirfærslu á starfsemi Skólaskrifstofu Austurlands yfir til fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar. Báðir sálfræðingar og annar kennsluráðgjafi Skólaskrifstofu Austurlands sem og ritari skrifstofunnar munu hefja störf á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar nú í haust. Ekki hefur enn verið ráðið í 25% starf talmeinafræðings, en unnið að úrlausn. Fræðslunefnd lýsir ánægju sinni með að Fjarðabyggð skuli áfram njóta þessara góðu starfskrafta og vonar að farsællega leysist með starf talmeinafræðings.

  3. 3. Aðgerðaáætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni

    Mál 2106035 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja tvö bréf, annað til stofnana sveitarfélaga um aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni og annað til sveitastjórna um utanumhald á forvörnum meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að fylgja eftir bréfi til stofnana sveitarfélagsins. Bréf til sveitarstjórnar lagt fram til kynningar.

  4. 4. Ársskýrsla fjölskyldusviðs 2020

    Mál 2103215 Allur ferill málsins

    Farið yfir texta í ársskýrslu fjölskyldusviðs fyrir árið 2020. Lagt fram til kynningar.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2022

    Mál 2104131 Allur ferill málsins

    Farið var yfir drög að minnisblaði til bæjarráðs um starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum. Fræðslustjóra falið að ljúka við gerð minnisblaðsins. Minnisblaðinu vísað til bæjarráðs.