Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 713

7. júní 2021, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 315 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Sigurður Ólafsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 7.júní, staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2022

    Mál 2104135 Allur ferill málsins

    Framhald umræðu frá síðasta fundi um undirbúning að fjárhagsáætlun 2022 fyrir þá málaflokka sem heyra beint undir bæjarráð, slökkvilið, sameiginlegan kostnað, atvinnumál og fjármagnsliði. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2022.

  2. 2. Tilboð í Skólaveg 42 á Fáskrúðsfirði

    Mál 2105184 Allur ferill málsins

    Framlagt kauptilboð í Skólaveg 42 á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð samþykkir að taka ekki tilboði.

  3. 3. Samstarf við Leigufélagið Bríet um leiguhúsnæði

    Mál 2105097 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir að nýju erindi Bríetar leigufélags um eignir Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir forsendur og felur fjármálastjóra að vinna málið áfram.

  4. 4. Aðgerðaáætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni

    Mál 2106035 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf forsætisráðherra og formanns sambandsins er varðar aðgerðaáætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni.

    Vísað til fjölskyldusviðs og umfjöllunar í fræðslunefnd, félagsmálanefnd, barnaverndarnefnd.

  5. 5. Fundargerðir upplýsingaöryggisnefndar

    Mál 1805262 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð upplýsingaöryggisnefndar nr. 7 frá 1. júní.

    Bæjarráð samþykkir breytingu á skipan nefndarinnar að tillögu hennar. Stjórnandi barnaverndar og félagsþjónustu tekur sæti í stað stjórnanda forvarnar- og stuðningsmála.

  6. 6. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2021

    Mál 2102016 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar sambandsins frá 28.maí lögð fram til kynningar.

  7. 7. XXXVI. landsþing sambandsins í maí 2021

    Mál 2105031 Allur ferill málsins

    Fundargerð 36. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.