Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 18

7. október 2019, kl. 17:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 634 liður 6

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 18 frá 7.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 276 liður 7

    Fundargerðir menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 17 og nr. 18 frá 23.september og 7.október 2019, teknar til afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 18 frá 7.október 2019, samþykkt með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2020

    Mál 1904132 Allur ferill málsins

    Umræða um áherslur í starfs- og fjárhagsáætlun 2020 í málaflokki menningarmála. Lagt fram minnisblað um fjárhagsáætlun menningarmála 2020 og verkefnaáætlun menningarstofu. Samkvæmt fjárhagsramma menningarmála er rekstrarniðurstaða málaflokksins áætluð tæpar 235 milljónir. Formaður menningar- og nýsköpunarnefndar mætir á fund bæjarráðs 8.október og fer yfir áherslur nefndarinnar.

  2. 2. Gjaldskrá bókasafna 2020

    Mál 1909150 Allur ferill málsins

    Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að gjaldskrá fyrir bókasöfnin í Fjarðabyggð verði óbreytt á árinu 2020. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  3. 3. Innviðagreining Fjarðabyggð 2019

    Mál 1904053 Allur ferill málsins

    Lögð fram kynning atvinnu- og þróunarstjóra á tilboði í innviðagreiningu sem unnin verður í samstarfi við Austurbrú. Hafnarstjórn hefur samþykkt að fara í vinnuna og var ákveðið að fá Austurbrú til verksins. Fyrsti fundur vegna vinnunnar hefur verið haldinn. Reiknað er með að verklok verði í apríl 2020.

  4. 4. Stefnumótun í ferðaþjónustu

    Mál 1811077 Allur ferill málsins

    Formaður gerði grein fyrir stöðu mála vegna vinnu við stefnumótun í ferðamálum. Drög að stefnumótun eru í vinnslu og verða lögð fyrir á næsta fundi.