Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 19

23. október 2019, kl. 17:00 til 17:53, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 636 liður 41

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 19 frá 23.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 278 liður 3

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 19 frá 23.október 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2020

    Mál 1904132 Allur ferill málsins

    Formaður menningar og nýsköpunarnefndar mætti fyrir hönd nefndarinnar á fund bæjarráðs til að ræða starfs- og fjárhagsáætlun. Einnig var fundað með sviðsstjóra, fjármálastjóra og bæjarstjóra og farið yfir ítargögn varðandi starfs- og fjárhagsáætlun. Gert er ráð fyrir viðbótarfjármagni í málaflokk 05, sem nemur 14 miljónum króna auk þess sem stöðugildi verkefnastjóra Menningarstofu verður aukið úr 50% í 100%. Áherslur nefndarinnar eru unnar upp úr nýrri menningarstefnu Fjarðabyggðar ásamt þeim verkefnum sem forstöðumaður menningarstofu leggur áherslu á fyrir komandi starfsár. Menningar og nýsköpunarnefnd samþykkir fyrirliggjandi starfs- og fjárhagsáætlun og vísar henni til bæjarráðs.

  2. 2. Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2019

    Mál 1903035 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 23.september 2019 lögð fram til kynningar.

  3. 3. Málefni Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2020

    Mál 1906116 Allur ferill málsins

    Safnanefnd mælir með að framlög til Héraðsskjalasafns Austfirðinga verði með sama hætti og á árinu 2019. Ekki er fallist á að veitt verði aukið framlag til ráðningar á starfsmanni, þar sem unnið er að framtíðarsýn fyrir skjalavörslu í sveitarfélaginu. Menningar- og nýsköpunarnefnd staðfestir tillögu safnanefndar.

  4. 4. Gjaldskrá bókasafna 2020

    Mál 1909150 Allur ferill málsins

    Safnanefnd leggur til að notendur bókasafna fái gjaldfrjálsan aðgang gegn framvísun Fjarðabyggðarkortsins með nafni. Með þessu styður sveitarfélagið við læsissáttmálann sem gerður var við ríkið og samtökin Heimili og skóli, jafnframt rýmar þetta við læsisstefnu sveitarfélagsins. Jafnframt eru gerðar lítilsháttar breytingar er varða sektir. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs til afgreiðslu.

  5. 5. Sumarlokanir í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 2019

    Mál 1906135 Allur ferill málsins

    Safnanefnd leggur til að leitað verði leiða til að auka opnunartíma bókasafnanna yfir sumartímann, þannig að opið verði fjóra tíma á viku í hverjum bæjarhluta. Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar eftir að forstöðumaður safnastofnunar taki saman minnisblað um útfærslu á sumaropnun og áætlaðan kostnað. Tekið fyrir á næsta fundi.

  6. 6. Safnanefnd - 12

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð safnanefndar, nr. 12 frá 15.október 2019, samþykkt samhljóða.

    1. 6.1 Fjárhagsáætlun 2020 og fundargerð júní 2019.1906116
    2. 6.2 Vettvangsferð HÍ á Íslenska stríðsárasafnið.1910071
    3. 6.3 Gjaldskrá bókasafna 2020.1909150
    4. 6.4 Sumarlokanir í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 2019.1906135
    5. 6.5 Stjórn Sjóminja- og smiðjusafn Jósafats Hinrikssonar.1806163
    6. 6.6 Uppbygging bragga við Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði.1910073
    7. 6.7 Hönnun á lóð við Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði.1910074