Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 278

31. október 2019, kl. 16:00 til 17:49, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Sigurður Ólafsson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1904128 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:02:20

    Lögð fram til fyrri umræðu tillaga að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana árin 2020 - 2023.

    Bæjarstjóri mælti fyrir fjárhagsáætlun.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Ragnar Sigurðsson, Rúnar Már Gunnarsson og Dýrunn Pála Skaftadóttir.

    Bókun Fjarðalista, Framsóknarflokks og Miðflokks við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar 2020 - 2023.

    Nú við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 vilja bæjarfulltrúar Framsóknarflokks, Fjarðalista og Miðflokksins leggja áherslu á eftirfarandi atriði í tengslum við gerð fjárhagsáætlunarinnar. Ljóst er að þrátt fyrir að rekstur sveitarfélagsins sé þungur í ljósi sérstöðu þess sem fjölkjarna samfélags, þá er fjárhagur þess sterkur og geta til að þjónusta íbúa þess mikil. Líkt og á yfirstandandi ári er haldið vel utan um rekstur þess en um leið brugðist við og fjárfest í þágu íbúa og atvinnulífs um leið og skuldahlutfall samstæðu Fjarðabyggðar fer lækkandi.

    Áherslur í rekstri Fjarðabyggðar eru áfram þær að hér sé samfélag sem hefur jöfnuð og jafnrétti að leiðarljósi og málefni fjölskyldunnar í fyrirrúmi. Gjöld vegna leik- og skóladagheimila, ásamt tónlistarskólagjöldum, eru með þeim lægri á landinu og afslættir virkir á milli þessara skólastiga. Þá verður áfram haldið þeirri stefnu að gera skólamáltíðir gjaldfrjálsar með lækkun um helming, á núverandi gjaldskrá, frá 1.ágúst 2020 og mun þá hver skólamáltíð kosta 150 kr. Þetta eru mikilvæg mál fyrir barnafjölskyldur og gera Fjarðabyggð að enn betri stað til að búa á. Áfram er staðinn vörður um gott skólastarf í leik-, grunn- og tónlistarskólum Fjarðabyggðar ásamt öflugu stoðkerfi félagsþjónustunnar. Þá munu breytingar á Fjölskyldusviði Fjarðabyggðar koma til fullrar virkni í upphafi árs 2020, þar sem megináherslan er lögð á innleiðingu Austurlandslíkansins með snemmtæka íhlutun að leiðarljósi og gildi öflugra forvarna. Þannig mun sveitarfélagið halda utan um íbúa sína enn betur.

    Einnig verður veitt frekara fé til leikskóla til að bæta starfsumhverfi starfsfólks, ásamt auknu fé til menningarmála til að auðga mannlífið ennfrekar til framtíðar. Þá verður sett fjármagn til heilsuátaks eldri borgara með innleiðingu Janusarverkefnisins til að auka lífsgæði þessa aldurshóps. Afnot íbúa af bókasöfnum sveitarfélagsins verða gerð gjaldfrjáls og þannig lagt til þjóðarátaks um læsi. Safnastarfsemi verður sett í forgang og horft sérstaklega til Íslenska Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði á næsta ári, ásamt uppbyggingu á skjalaaðstöðu fyrir sveitarfélagið.

    Verðmætahækkun fasteignamats íbúðarhúsnæðis í Fjarðabyggð fyrir árið 2020 er undir markmiðum lífskjarasamninga og jafnframt er álagningarhlutfall fráveitugjalda lækkað um 10%, frá stuðlinum 0,306 í 0,275. Með því er komið til móts við heimili og fyrirtæki í Fjarðabyggð til lækkunar fasteignagjalda. Þá verður farið í undirbúning og skoðun á breytingu á álagningu á vatnsgjöldum fyrir árið 2021, með það fyrir augum að horft verði til stærðar eigna í stað verðmætamats. Slík breyting þarfnast góðs undirbúnings og kynningar og rétt að nýta næsta ár til þess.

    Fjárfestingum er áfram stillt í hóf í Fjarðabyggð og horft til þeirra sem eru hvað nauðsynlegastar með fjölgun íbúa og sterks atvinnulífs í huga. Meginfjárfesting A hluta verður áfram stækkun leikskóla á Reyðarfirði, ásamt því að farið verður milli umræðna í kostnaðar- og þarfagreiningu á stækkun leikskóla á Eskifirði með það fyrir augum að ráðast í hönnun húsnæðis á árinu 2020. Þá er einnig unnið að kostnaðargreiningu á framkvæmdum við Fjarðabyggðarhöllina, til undirbúnings framkvæmdum við hana á kjörtímabilinu. Þarna er verið að fjárfesta í blómlegri framtíð. Meginfjárfestingar Hafnarsjóðs á komandi ári verða í uppbyggingu á nýrri hafnaraðstöðu við fiskiðjuver Eskju á Eskifirði og stækkun Mjóeyrarhafnar á Reyðarfirði, ásamt viðlegukanti á Stöðvarfirði. Sjávarútvegur og iðnaður eru burðarásar sveitarfélagsins og áfram verður framkvæmt til að geta þjónustað þessar greinar sem best. Án öflugs atvinnulífs er engin velferð og að því leyti erum við lánsöm hér í Fjarðabyggð. Þá mun áfram verða unnið að innviðauppbyggingu í Breiðdal eins og samið var um í tengslum við sameininguna á árinu 2018.

    Þrátt fyrir að útlit sé áfram fyrir sterkt tekjustreymi er líkt og áður farið varlega í tekjuspá sveitarfélagsins og því er gert ráð fyrir heimild til lántöku í fjárhagsáætlun ársins 2020 á móti framkvæmdum, eins og verið hefur í áætlunum síðustu ára en slíkt er ekki óeðlilegt þar sem fjárfesta á fyrir um 740 milljónir á árinu. Óvíst er þó að reyni nokkuð á þessa heimild verði tekjur í samræmi við yfirstandandi ár og þannig áfram haldið á þeirri vegferð að lækka skuldir sveitarfélagsins líkt og á síðustu árum.

    Það er því trú okkar að með þessum aðgerðum verði enn betra að búa í Fjarðabyggð til framtíðar.

    Bókun Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð vegna fjárhagsáætlunar 2020 - 2023.

    Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 til annarrar umræðu - en áskilur sér þó rétt til að koma með tillögur inn í bæjarráð á milli umræðna um breytingar á fjárhagsáætlun.

    Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð harmar fyrirhugaða skuldsetningu sveitarfélagsins til næstu ára. Farið er af braut skynsamlegrar og ábyrgrar fjármálastefnu sveitarfélagsins með áætlun um 200 m.kr. lántöku á næsta ári. Það er mikilvægt að Fjarðabyggð snúi frá fyrirhugaðri þróun á frekari skuldsetningu sveitarfélagsins með aukinni vaxtabyrgði til framtíðar. Ljóst er að á komandi árum bíða fjölmargar áskoranir í innviðauppbyggingu og fjárfestingum, með aukinni skuldsetningu sveitarfélagsins er vandséð að hægt verði að standast þær skuldbindingar án frekari lántöku. Þá mótmælir Sjálfstæðisflokkurinn því að samhliða lántöku sé gert ráð fyrir frekari niðurgreiðslu skólamáltíða með 50% lækkun gjaldskrár ofan á þær 34 m.kr. útgjaldaaukningu sem varð til á þessu ári vegna þess.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun 2020-2023, til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  2. 2. Bæjarráð - 636

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:01:36

    Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir og Ragnar Sigurðsson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 636 frá 28.október 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Ungt Austurland - beiðni um styrk19091221:02:04
    2. 2.2 Tvöföld skólavist1910056
    3. 2.3 Jafnlaunakerfi1812054
    4. 2.4 Ljósleiðaralögn í Mjóafjörð18021521:03:28
    5. 2.5 49.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (íbúakosningar um einstök mál),1910130
    6. 2.6 29.mál til umsagnar frumvarp til laga um jarðalög (forkaupsréttur sveitarfélaga),1910128
    7. 2.7 Útibú Tryggingamiðstöðvar í Fjarðabyggð19021541:04:24
    8. 2.8 Húsnæði í hesthúsabyggð á Símonartúni19101631:04:52
    9. 2.9 740 Fólkvangur - Framkvæmdaleyfi, vegur, stígar og bílastæði1910167
    10. 2.10 Nesgata 7 Neskaupstað - eignarhald1910121
    11. 2.11 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20201904132
    12. 2.12 Útsvar 20201910061
    13. 2.13 Gjaldskrá fasteignagjalda 202019091531:08:36
    14. 2.14 Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 20201909172
    15. 2.15 Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar dreifing 20201909167
    16. 2.16 Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar sala 20201909168
    17. 2.17 Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 202019091581:10:00
    18. 2.18 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 20201909152
    19. 2.19 Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 20201909162
    20. 2.20 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 202019091571:09:04
    21. 2.21 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 20201909176
    22. 2.22 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 20201909160
    23. 2.23 Gjaldskrá fjarvarmaveitu 20201909156
    24. 2.24 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 20201909173
    25. 2.25 Gjaldskrá félagsheimila 20201909154
    26. 2.26 Gjaldskrá leikskóla 20201909165
    27. 2.27 Gjaldskrá grunnskóla 20201909159
    28. 2.28 Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 20201909170
    29. 2.29 Gjaldskrá skóladagheimila 20201909169
    30. 2.30 Gjaldskrá tónlistarskóla 20201909175
    31. 2.31 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 20191909166
    32. 2.32 Gjaldskrá sundlauga Fjarðabyggðar 20201909163
    33. 2.33 Gjaldskrá íþróttahúsa Fjarðabyggðar 20201909164
    34. 2.34 Gjaldskrá bókasafna 20201909150
    35. 2.35 Gjaldskrá félagslegrar heimþjónustu 20201909155
    36. 2.36 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 20201909151
    37. 2.37 Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2020 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn1909174
    38. 2.38 Gjaldskrá garðsláttur fyrir öryrkja og eldriborgara1909178
    39. 2.39 Gjaldskrá snjómokstur fyrir öryrkja og eldriborgara1909179
    40. 2.40 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 20231904128
    41. 2.41 Menningar- og nýsköpunarnefnd - 191910018F
    42. 2.42 Safnanefnd - 121910012F
    43. 2.43 Barnaverndarfundargerðir 20191902124
  3. 3. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 19

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:10:56

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 19 frá 23.október 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20201904132
    2. 3.2 Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 20191903035
    3. 3.3 Málefni Héraðsskjalasafns Austfirðinga 20201906116
    4. 3.4 Gjaldskrá bókasafna 20201909150
    5. 3.5 Sumarlokanir í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 20191906135
    6. 3.6 Safnanefnd - 121910012F
  4. 4. Safnanefnd - 12

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:11:24

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð safnanefndar, nr. 12 frá 15.október 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Fjárhagsáætlun 2020 og fundargerð júní 2019.19061161:11:24
    2. 4.2 Vettvangsferð HÍ á Íslenska stríðsárasafnið.19100711:13:16
    3. 4.3 Gjaldskrá bókasafna 2020.19091501:14:40
    4. 4.4 Sumarlokanir í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 2019.19061351:15:08
    5. 4.5 Stjórn Sjóminja- og smiðjusafn Jósafats Hinrikssonar.1806163
    6. 4.6 Uppbygging bragga við Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði.19100731:15:36
    7. 4.7 Hönnun á lóð við Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði.19100741:19:48
  5. 5. Barnaverndarfundargerðir 2019

    Mál 1902124 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:20:44

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 107 frá 29.ágúst 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

  6. 6. Jafnréttisstefna 2019-2023

    Mál 1910037 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:21:12

    Síðari umræða um jafnréttisstefnu 2019 - 2023. Forseti mælti fyrir jafnréttisstefnu til síðari umræðu. Enginn tók til máls. Bæjarstjórn samþykkir Jafnréttisstefnu 2019-2023 með 9 atkvæðum.

  7. 7. 740 Bakkavegur 5 - umsókn um stækkun lóðar

    Mál 1908119 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:22:36

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi í tengslum við afgreiðslu þessa liðar og tók Eydís Ásbjörnsdóttir við stjórnun fundarins.

    Lögð fram eftir grenndarkynningu lóðarumsókn SÚN, dagsett 30. ágúst 2019, þar sem sótt er um stækkun lóðarinnar við Bakkaveg 5 á Norðfirði til vesturs að göngustíg samsíða Bakkalæk.

    Gert er ráð fyrir að stækkun verði nýtt fyrir viðbyggingu við núverandi húsnæði á lóðinni. Sjö athugasemdir bárust vegna grenndarkynningar. Lögð fram umsögn sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna athugasemda, dagsett 19. október 2019. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur athugasemdir ekki þess eðlis að hafna beri umsókn um stækkun lóðar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum niðurstöðu eigna- skipulags- og umhverfisnefndar vegna grenndarkynningar.