Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

Ljósleiðaralögn í Mjóafjörð

Mál 1802152 Fyrst á dagskrá 26. febrúar 2018, síðast 31. október 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 31. október 2019, frá 1:03:28

Í heiti málsins: Mjóifjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  • Upptaka af umræðu
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Bæjarráð, fundur 554 liður 11

    Framlagt bréf Neyðarlínunnar þar sem kynntar eru hugmyndir um lagningu ljósleiðara frá Seyðisfirði í Mjóafjörð um Brekkugjá í Brekkuþorp. Óskað er eftir framlagi Fjarðabyggðar til verkefnisins að fjárhæð 3 milljónir kr.

    Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu með framlagi sem nemur 3 milljónum kr. sbr. tillögu Neyðarlínunnar. Fjármögnun vísað til ljósleiðaravæðingar í Fjarðabyggð á árinu 2018.

  2. 2019

    Bæjarráð, fundur 636 liður 4

    Framlögð drög samnings um lagningu ljósleiðaraheimtauga í Brekkuþorpi ásamt minnisblaði. Samningsaðilar eru Fjarðabyggð og Neyðarlínan sem tekur að sér lagningu heimtauga um Brekkuþorp í Mjóafirði.

    Bæjarráð samþykkir að gerður verði samningur við Neyðarlínuna um lagningu ljósleiðara í Mjóafirði með stuðningi Fjarskiptasjóðs og felur bæjarstjóra að útfæra og undirrita hann. Jafnframt að útgjöld vegna samnings verði fjármögnuð af framlagi sveitarfélagsins til ljósleiðaraverkefna á árinu 2019.

  3. Bæjarstjórn, fundur 278 liður 2.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 636“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

    Upptaka bæjarstjórnarfundar 278. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube

    Sjálfvirk uppskrift af kaflanum

    Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.

    • 1:03:28 það fé sem sveitarfélögin hafa styrkt ungt austurlands fer nánast allt í það verkefni bæjarráðið samþykkti að veita umbeðin styrk að því gefnu að ársreikningar félagsins og fundargerða velfundar verið skilaðin og jafnframt var er hérna forstöðumanni menningarstofu falið að vera í samskiptum við félagið það liðu fjögur og löglauð framdraugasamningi um lagningu ljóslegra heimtauga í brekkuþorpi
    • 1:03:56 samningsaðilar eru fjarðabyggð og neyðarlínan sem tekur að sér lagningu heimtauga í brekkuþorpi ásamt og minnisbla sem fylgdi því samningsaðilar eru í fjarðabyggd og neyðarlínan sem tekur ath sér lagningu himtaugarinnar og vægir að samþykkti að gerð vera samningur við neyðarlínuna um lagningu ljósleiðarans og með stuðningi fjarskiptasjóðs bæjarstjóra fali að útfæra samninginn og undirrita