Bæjarráð, fundur 632
1. október 2019, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 276 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 632, 633 og 634 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 632 frá 1.október 2019, samþykkt með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023
Mál 1904128 Allur ferill málsins
Áframhaldandi vinna við fjárhagsáætlun ársins 2020.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2019 fyrir málaflokka 21, 13, 07 og 03
Mál 1904138 Allur ferill málsins
Lagt fram yfirlit fjármálastjóra yfir málaflokk heilbrigðismála og tillaga hans að breytingu á framsetningu hluta málaflokks heilbrigðismála með yfirfærslu í málaflokk félagsmála.
-
3. Rekstur málaflokka 2019 TRÚNAÐARMÁL
Mál 1904033 Allur ferill málsins
Framlagt yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - júlí 2019 og skatttekjur og launakostnað janúar - ágúst 2019.
-
4. Endurnýjun húsnæðis Uppsala
Mál 1904082 Allur ferill málsins
Ragnar Sigurðsson vék af fundi undir þessum lið. Farið yfir nauðsynlegar framkvæmdir á hjúkrunarheimilinu Uppsölum, lögð fram kostnaðaráætlun vegna framkvæmdanna og drög að bréfi til Heilbrigðisráðuneytisins vegna þátttöku í framkvæmdinni. Fjármálastjóra falin afgreiðsla málsins.
-
5. Ungt Austurland - beiðni um styrk
Mál 1909122 Allur ferill málsins
Félagið Ungt Austurland óskar eftir styrk að upphæð 507.000 kr. frá Fjarðabyggð vegna starfsemi á komandi vetri. Umbeðin styrkupphæð er ákveðin í samræmi við íbúafjölda sveitarfélagsins. Bæjarráð tekur vel í erindið og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa og forstöðumanni menningarstofu að funda með forsvarsmönnum félagsins og fara yfir verkefni næsta árs. Niðurstaða þess fundar verði kynnt bæjarráði.
-
6. Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði
Mál 1908051 Allur ferill málsins
Bréf landeigenda á Óseyri í Stöðvarfirði er varðar lausagöngu fjár í landi Óseyrar Stöðvarfirði, lausafjárganga fjár í Stöðvarfirði og lausafjárgöngu í Fjarðabyggð. Lagt fram til kynningar en erindið hefur verið tekið fyrir í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og vísað til umfjöllunar í landbúnaðarnefnd. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.
-
7. Samstarfstækifæri í Póllandi
Mál 1909115 Allur ferill málsins
Erindi sambandsins er varðar samstarfstækifæri við sveitarfélög í Póllandi. Bæjarstjóra falið að kanna erindið og forsendur þess betur.
-
8. Tré lífsins - minningagarðar
Mál 1909128 Allur ferill málsins
Kynning á minningagörðum og frumkvöðlaverkefninu Tré lífsins og hvort áhugi sé fyrir að slíkur minningagarður verði opnaður í Fjarðabyggð. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til afgreiðslu.
-
9. Forkaupsréttur að Áka í Brekku - 2652
Mál 1909136 Allur ferill málsins
Beiðni um yfirlýsingu þess efnis að sveitarfélagið hyggist ekki nýta forkaupsrétt á bátnum Áka í Brekku SU 60 sem seldur var frá Breiðdalsvik fyrir nokkru. Bæjarráð mun ekki nýta forkaupsrétt að bátnum.
-
10. 101.mál til umsagnar frumvarp til laga um skráningu einstaklinga (heildarlög),
Mál 1909142 Allur ferill málsins
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um skráningu einstaklinga (heildarlög), 101. Undirritaðar umsagnir berist eigi síðar en 10. október. Bæjarstjóra falið að yfirfara frumvarpið.
-
11. Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2019
Mál 1910004 Allur ferill málsins
Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 2.október á Hilton Reykjavík Nordica. Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja fundinn.
-
12. Ársfundur samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2019
Mál 1910005 Allur ferill málsins
Ársfundur samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum verður haldinn 4.október á Hilton Reykjavík Nordica. Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja fundinn.
-
13. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 17
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 17 frá 23.september 2019, lögð fram til umfjöllunar.
- 13.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20201904132
- 13.2 Fjárhagsáætlun Héraðsskjalasafns Austfirðinga 20201906116
- 13.3 Umsókn um styrki til menningarmála1902099
- 13.4 Málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar 2018 og 20191808065
- 13.5 Umsókn um styrki til menningarmála1909039
- 13.6 Fornleifarannsóknir í Stöð1909087
- 13.7 Safnanefnd - 111909013F
-
14. Safnanefnd - 11
Fundargerð safnanefndar, nr. 11 frá 11.september 2019, lögð fram til umfjöllunar.
- 14.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20201904132
- 14.2 Stefnumótun í safnamálum 2019-20211811078
- 14.3 Málefni Safnaráðs Neskaupstaðar.1812131
- 14.4 Hernámsdagur - endurvakin1907082
-
15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 243
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 243 frá 30.september 2019, lögð fram til umfjöllunar.
- 15.1 Varanleg lýsing í Lystigarði Neskaupstaðar og skemmdaverk.1909083
- 15.2 Lystigarður Neskaupstaðar1605142
- 15.3 Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði1908051
- 15.4 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 20191909098
- 15.5 Afréttarmál - Héraðsfé1608075
- 15.6 Skrúðgarður Fáskrúðsfjarðar1712016
- 15.7 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar fyrir B hluta stofnanir1904131
- 15.8 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar í A hluta 20201904130
- 15.9 Lambeyrarbraut 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi1909130
- 15.10 750 Skólavegur 12 og 14 - Kæra vegna sólpalls og skjólveggs á lóðamörkum1907106
- 15.11 Vottun gervigrass í Fjarðabyggðarhöllinni1909149