Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

Varanleg lýsing í Lystigarði Neskaupstaðar og skemmdaverk.

Mál 1909083 Fyrst á dagskrá 30. september 2019, síðast 10. október 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 243 liður 1

    Lagt fram bréf Helgu M. Steinsson formanns Kvenfélagsins Nönnu fh. félagsins vegna varanlegrar lýsingar í Lystigarði Neskaupstaðar og um skemmdarverk sem þar voru unnin, dagsett 14. september 2019. Skorað er á bæjaryfirvöld að koma fyrir lýsingu meðfram göngustíg garðsins svo notagildi aukist allt árið og til að koma í veg fyrir að skemmdarverk verði unnin. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá bæjarráði. Einar Már Sigurðarson stýrir fundi en tekur ekki þátt í umræðu um erindið.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs í samráði við umhverfisstjóra að skoða hvernig hægt er að koma á móts við óskir félagsins um lýsingu Lystigarðsins.

  2. Bæjarráð, fundur 632 liður 15.1

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 243“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 276 liður 4.1

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 243“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is