Verkefni til viðspyrnu í samfélaginu vegna faraldurs
Mál 2004008 Fyrst á dagskrá 3. apríl 2020, síðast 16. apríl 2020. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Menningar- og nýsköpunarnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 24 liður 2
Framlögð vinnugögn vegna verkefna sem unnið hefur verið að vegna ferðamála, markaðs- og upplýsingamála, menningarmála og tengdra verkefna af hálfu stjórnsýslu- og þjónustusviðs.
Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar fyrir snögg viðbrögð og samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs sem vinnur að aðgerðum fyrir samfélagið vegna COVID 19 faraldursins.
-
Bæjarráð, fundur 657 liður 5
Vísað frá Menningar- og nýsköpunarnefnd til bæjarráðs.
Bæjarráð leggur til að tillögur frá stjórnsýslu- og þjónustusviði í aðgerðum til viðspyrnu vegna Covid-19 faraldursins verði kostnaðargreindar og nýttar eftir því sem við á í aðgerðaráætlun.
Lesa alla bókunina (202 orð til viðbótar)
Bæjarráð samþykkir jafnframt að fela atvinnu- og þróunarstjóra að skipuleggja fjármálaráðgjöf með fagaðilum fyrir fyrirtæki í Fjarðabyggð sem þess óska. Ábending um þörf fyrir slíka ráðgjöf kom fram á fundi sem bæjarstjóri, formaður menningar- og nýsköpunarnefndar, atvinnu- og þróunarstjóri og upplýsingafulltrúi áttu með ferðaþjónustuaðilum í Fjarðabyggð 3. apríl sl. Þar var farið yfir stöðuna vegna faraldursins og viðspyrnu. Kostnaður við fjármálaráðgjöf verður tekinn af liðnum óráðstafað. Bæjarráð vísar tillögunum til bæjarstjóra, bæjarritara og fjármálastjóra til frekari vinnslu um verkefni til viðspyrnu sveitarfélagsins vegna Covid-19 faraldursins.
Bæjarráð Fjarðabyggðar vill koma eftirfarandi á framfæri í tengslum við aðgerðir stjórnavalda vegna Covid-19. Í þeim aðgerðum sem búið er að boða er meðal annars lánastofnunum gefið meira andrými til útlána til að koma á móts við viðskiptavini sína. Í þeim aðgerðum er mjög mikilvægt að útlánareglur lánastofnana séu þá um leið samræmdar þannig að þær séu þær séu sömu á öllum landsvæðum. Ekki sé bara horft til núverandi skilgreininga á vaxtasvæðum eins og hver lánastofnun hefur skilgreint þau hjá sér í sínum reglum. Í ástandi eins og nú er uppi í íslensku samfélagi er nauðsyn að lánastofnunum sé gert að takast á við ástandið eins á landinu öllu til að samfélagið allt komist í gegnum þetta.
-
Bæjarráð, fundur 657 liður 12.2
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 24“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 290 liður 2.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 657“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 290 liður 7.2
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 24“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.